Hugleiðingar veðurfræðings
Á mánudag: Austan og norðaustan 3-10 m/s, en 8-13 við suðausturströndna. Víða bjart veður og hiti 17 til 28 stig, en sums staðar þokubakkar og mun svalara við norður- og austurströndina.
Í gærkvöld nálgaðist grunn lægð úr suðri og á morgun verður hún fyrir vestan land. Þá snýst í sunnan 3-8 m/s. Léttskýjað á Norður- og Austurlandi á morgun og hiti 15 til 25 stig. Skýjað annars staðar og dálítil væta fram eftir degi, hiti 12 til 18 stig.
Á mánudag og þriðjudag er því spáð að ný lægð suður í hafi beini til okkar hlýjum loftmassa frá Evrópu. Búist er við austan- og norðaustan golu eða kalda. Víða bjart veður og mjög hlýtt, en svalara þokuloft gæti þó látið á sér kræla við norður- og austurströndina.
Spá gerð: 12.07.2025 15:34. Gildir til: 14.07.2025 00:00.

Veðurhorfur á landinu
Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Rigning suðaustanlands og víða dálítil rigning annars staðar, en þurrt norðvestantil á landinu.
Suðlæg átt 3-8 á morgun. Léttskýjað norðan- og austanlands og hiti 15 til 25 stig. Skýjað á Suður- og Vesturlandi, smá væta fram eftir degi og hiti 12 til 18 stig.
Spá gerð: 12.07.2025 21:30. Gildir til: 14.07.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Austan og norðaustan 3-10 m/s, en 8-13 við suðausturströndna. Víða bjart veður og hiti 17 til 28 stig, en sums staðar þokubakkar og mun svalara við norður- og austurströndina.
Á þriðjudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-8. Bjart með köflum, en þokubakkar við ströndina og skúrir á stöku stað síðdegis. Áfram mjög hlýtt.
Á miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt og sums staðar væta, einkum sunnanlands, en yfirleitt þurrt og bjart á austanverðu landinu. Hiti 13 til 25 stig, hlýjast í innsveitum norðaustantil.
Á fimmtudag, föstudag og laugardag:
Hæg breytileg átt, skýjað og dálítil súld öðru hverju. Hiti 12 til 20 stig.
Spá gerð: 12.07.2025 20:08. Gildir til: 19.07.2025 12:00.

