Ótti Sjálfstæðisflokksins við umræðuna
Þessi afskræming xD á auglýsingu okkar í Flokkur fólksins á fundum um sjávarútvegsmál kemur kannski ekki alveg á óvart – Þetta hefur verið þeirra leið og það er eins og það er.

Engu að síður er það staðreynd að fundirnir hafa verið vel sóttir m.a. af fyrrverandi og núverandi sjó- og skipstjórnarmönnum sem sumir hverjir hafa hingað til verið liðsmenn Sjálfstæðisflokksins.
Umræðan hefur farið vel fram og verið málefnaleg en það eru engar ýkjur að það er þung undiralda um sjávarútvegsmálin og þá eru einkum þrír þættir undir sem snúa að strandveiðum, fiskveiðiráðgjöfinni og verðmyndun á aflahlut sjómanna.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar greinilega að láta þessa umræðu áfram fram hjá sér fara og gera hróp að þeim sem taka þessa nauðsynlegu umræðu áfram – Verði Sjálfstæðisflokknum að góðu.
Við í Flokki fólksins höldum okkar striki.

