Fréttatíminn fékk upplýsingar um fyrirtæki sem bauð laxeldisfyrirtæki á Vestfjörðum þjónustu sína til að vakta eldiskvíar sem eru í sjó á Vestfjörðum og hafði samband við fyrirtækið
,,Jú, það er rétt að við fórum á fund hjá laxeldisfyrirtækinu og buðum þeim upp á alsherjarvöktun á öllum kvíum sem eru á svæðinu. Við erum með sérstaklega gott skip í slíkt verkefni og vorum búnir að tryggja okkur besta mögulega búnað til að fylgjast með kvíunum sem og ástandi á laxi sem þar er. Þessi þjónusta hefði borgað sig margfalt strax, því hægt hefði verið að koma í veg fyrir stórtjón sem hafa orðið vegna laxalúsa og fleira þar sem laxeldisfyrirtæki tapa hundruðum milljóna vegna dauða á laxi í sjókvíum.
Hitt tjónið sem þau valda er þegar lax sleppur úr kvíum vegna þess að það er gat á henni og samkvæmt fréttum MAST eru þessi göt opin í langan tíma og gífurlegt magn af laxi sleppur með tilheyrandi tjóni fyrir laxveiðiár um allt land. Sem og tjón fyrir laxeldisfyrirtækið sem tapar afurðum sínum og tekjum og skapar sér jafnvel skaðabótaábyrgð sem og neikvæðu umtali og viðhorfi landsmanna.“ Segir forsvarsmaður hjá fyrirtækinu.
Hvernig var brugðist við erindi fyrirtækisins um að aðstoða laxeldisfyrirtæki um að tryggja vörslu á kvíum og laxi sem þar er og sýna þannig samfélagslega ábyrgð?
,,Við fórum Vestur i brjáluðu veðri með allar upplýsingar í farteskinu fyrir laxeldisfyrirtækið og vorum i kjölfarið í daglegum samskiptum um verkefnið í tölvusamskiptum. Við lýstum rækilega öllu ferlinu fyrir þeim og hversu nauðsynlegt væri að vera með strangt og öruggt eftirlit með laxeldinu til að forðast þau tjón sem hafa sýnt sig að verða reglulega.
Svörin komu fljótlega frá þeim um að þeir hefðu engan áhuga á að tryggja öryggi á staðnum eða axla ábyrgð og að stjórn fyrirtækisins hefði tekið þá ákvörðun.
Við vorum mjög hissa á þessu svari og viðhorfi þar sem um gífurlega hagsmuni er um að ræða og um óafturkræf tjón að sama skapi sem þessi fyrirtæki eru að valda sjálfum sér og öðrum. Það má eiginlega bara túlka svör þeirra þannig að þeim sé drullu sama og þeir vilja ekki axla neina ábyrgð og við fengum engin frekari svör frá þeim.“