• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Níunda handtakan vegna manndráps

Handtekinn í sundi, lögreglu hótað lífláti, rán og umferðarslys

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Helstu atriði úr dagbók LRH frá 17-05. Þegar þetta er ritað eru fimm aðilar vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 82 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.

Lögreglustöð 1

Íþróttafélag kært fyrir að veita áfengi utandyra á íþróttakappleik.

Óskað var aðstoðar lögreglu vegna slagsmála í miðborginni og var einn aðili handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Hann sá sig knúinn til að hóta lögreglumönnum lífláti og var hann fluttur á lögreglustöð hvar hann var vistaður í fangaklefa þar til ástand hans leyfir að við hann verði rætt.

Þjófur gripinn við iðju sína í fataverslun í miðborginni. Afgreitt á vettvangi.

Tilkynnt um umferðarslys í Laugardal hvar bifreið var ekið í gegnum grindverk. Engar frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Maður smyglaði sér ofan í sundlaug án þess að greiða og hagaði sér furðulega gagnvart öðrum gestum. Honum var gert að yfirgefa sundlaugina sem hann neitaði að gera og var því handtekinn og fluttur á lögreglustöð hvar hann var látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Manni með vesen vísað á brott úr gistiúrræði í miðborginni.

Maður handtekinn í miðborginni en sá hafði verið til ama á veitingahúsi og ekki látið af hegðun sinni þrátt fyrir fortölur lögreglumanna. Fluttur á lögreglustöð og látinn laus að skýrslutöku lokinni.

Óskað var aðstoðar lögreglu á veitingastað í miðborginni vegna manns sem var vísað út en neitaði að fara. Sá var ekki viðræðuhæfur sökum ölvunarástands og neitaði að segja deili á sér. Hann var því handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Vistaður í fangaklefa þar til ástand hans skánar.

Maður handtekinn í Hlíðahverfi grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna. Vistaður í fangaklefa vegna málsins.

Umferðarslys í hverfi 104 hvar þrjár bifreiðar skemmdust og ein reyndist óökufær. Engin slys á fólki og bifreiðin dregin af vettvangi.

Ökumaður kærður fyrir að nota farsíma undir stýri en sá ók fram hjá fyrrgreindum slysavettvangi með síma sinn á lofti til að taka myndskeið af því sem hafði gerst.

Umferðarslys í miðborginni en þar hafði ökumaður rafhlaupahjóls slasast. Reyndist vera undir áhrifum. Flutt á slysadeild til aðhlynningar sem og sýnatöku.

Maður handtekinn í miðborginni grunaður um meiri háttar líkamsárás. Fluttur á lögreglustöð og hótaði ítrekað að drepa lögreglumenn. Vistaður í fangaklefa vegna málsins.

Lögreglustöð 2

Ökumaður kærður fyrir að aka án gildra réttinda. Afgreitt á vettvangi.

Tveir ökumenn handteknir grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Hefðbundið ferli og lausir að sýnatöku lokinni.

Umferðaróhapp í hverfi 220. Minni háttar skemmdir og engin slys á fólki.

Ökumaður handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Fluttur á lögreglustöð og laus eftir sýnatöku.

Lögreglustöð 3

Tilkynnt um rán í hverfi 109. Málið er í rannsókn.

Ökumaður kærður fyrir að aka á 111 km/klst í hverfi 200 hvar hámarkshraði er 50 km/klst. Fluttur á lögreglustöð hvar hann var sviptur ökurétti vegna málsins.

Tilkynnt um bifreið úti í móa í hverfi 109. Reyndist vera umferðarslys og var ökumaðurinn aðstoðaður.

Tilkynnt um að bensínsprengju hefði verið kastað í vegg sem var skemmdur eftir atvikið. Málið er í rannsókn.

 

Lögreglustöð 4

Ökumaður kærður fyrir að aka á 149 km/klst í hverfi 113 hvar hámarkshraði er 80 km/ klst. Afgreitt á vettvangi.

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Viðvörun – Frost um allt land og rok framundan

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Sturluð staðreynd

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Óttast eldgos á Tenerife

    162 deilingar
    Share 65 Tweet 41
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    24 deilingar
    Share 10 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?