• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 22. ágúst 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fimm umsækjendur um embætti landlæknis

Einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. ágúst 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu (EHÞ) hefur skilað skýrslu sinni til ráðherra. Formaður starfshópsins var Kári Stefánsson fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. EHÞ felur í sér að forvarnir, greining og meðferð er sniðin sérstaklega að hverjum einstaklingi, eftir því sem kostur er, m.a. á grunni erfðafræði, lífvísa og klínískra upplýsinga. Markmiðið er að velja besta meðferðarkostinn á hverjum tíma, forðast ónauðsynlegar meðferðir og draga úr aukaverkunum. Ráðherra boðar til morgunverðarfundar 27. ágúst þar sem skýrslan verður kynnt og rætt um málefnið frá ýmsum sjónarhornum.

Margvíslegur ávinningur

Vísindafólk og sérfræðingar á sviði heilbrigðismála víða um heim telja að EHÞ geti verið mikilvæg til að mæta á árangursríkan hátt margvíslegum áskorunum sem felast m.a. í öldrun þjóða, vaxandi sjúkdómsbyrði og þar með auknu álagi á heilbrigðiskerfi og sívaxandi kostnaði. Með því að nýta nýjustu þekkingu á erfðafræði, prótínmælingum og öðrum lífvísaþáttum má bæta horfur sjúklinga, gera skimun markvissari og hefja meðferð fyrr. Þetta getur aukið lífslíkur, bætt lífsgæði og sparað samfélaginu kostnað.

Skýrslan markar mikilvæg spor inn í framtíðina

„Það leikur enginn vafi á því að gríðarleg tækifæri felast í innleiðingu og þróun EHÞ og hún á eftir að hafa mikil áhrif á heilbrigðisþjónustu framtíðarinnar, jafnt á sviði forvarna, sjúkdómsgreininga og meðferðar. Hafa þarf hugfast að ýmis siðferðileg og lagaleg álitaefni tengjast EHÞ sem gerir miklar kröfur til innleiðingar hennar, líkt og fjallað er um í skýrslu starfshópsins. Skýrsla hópsins markar mikilvæg spor inn í framtíðina á þessu sviði en dregur líka fram að mikið starf er óunnið“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Sterk staða Íslands

Á síðustu árum og áratugum hefur þróunin verið hröð víða um heim við uppbyggingu gagnagrunna með erfða- og heilsufarsupplýsingum um stóra hópa einstaklinga. Staða Íslands er sterk hvað þetta varðar þar sem viðamiklar erfða- og ættfræðiupplýsingar eru fyrir hendi í lífsýnasöfnum og gagnagrunnum. Höfundar meðfylgjandi skýrslu benda á að í þessu felist mikilvægur styrkleiki sem geri Íslandi kleift að vera í fararbroddi við þróun EHÞ, ekki aðeins hérlendis, heldur á heimsvísu.

Ráðist í tilraunaverkefni um þekkta arfgenga sjúkdóma

Starfshópurinn leggur til að ráðist verði í tilraunaverkefni með EHÞ vegna tiltekinna þekktra arfgengra sjúkdóma hér á landi. Lagt er til að skimað verði fyrir arfgengri hækkun kólesteróls með það að markmiði að veita tímanlega meðferð og fyrirbyggja sjúkdóma. Einnig að skimað verði fyrir arfengri járnofhleðslu sem er þekktur áhættuþáttur á grunni algengs erfðabreytileika sem leiðir til óafturkræfra sjúkdóma en er unnt að fyrirbyggja með snemmgreiningu og viðeigandi meðferð. Enn fremur er lagt til verkefni sem miðar að því að finna mögulega arfbera fyrir arfgerðir sem geta valdið lífshættulegri aukaverkun við algengum svæfingarlyfjum. Ef þetta liggur fyrir er hægt að velja önnur svæfingarlyf fyrir viðkomandi einstaklinga.

Morgunverðarfundur miðvikudaginn 27. ágúst

Eins og áður segir verður skýrsla starfshópsins kynnt á morgunverðarfundi sem heilbrigðisráðherra efnir til 27. ágúst næstkomandi, í samvinnu við fulltrúa starfshópsins. Nánari upplýsingar um fundinn, dagskrá og fyrirlesara verður kynnt innan skamms. Fundurinn verður haldinn í Hringsal Landspítala og stendur frá kl. 8.00-10.00. Hann hefst kl. 8.00 og verður einnig aðgengilegur í beinu streymi.

  • Skýrsla starfshópsins
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Vistaður í fangaklefa eftir umferðaróhapp

    Kona á fertugsaldri í gæsluvarðhaldi

    34 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Ungur drengur lést úr malaríu á Landspítalanum

    164 deilingar
    Share 66 Tweet 41
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    492 deilingar
    Share 197 Tweet 123
  • Hótel Vogur á Fellsströnd – vel búið sveitahótel á friðsælum stað

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Þjófnaður á hraðbanka

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?