Sumarið er tíminn og landsmenn margir á ferð og flugi. Þegar flug raskast kunna farþegar að eiga ýmis réttindi. Réttarstaðan fer þó eftir eðli röskunarinnar svo sem vegalengd flugs og hversu lengi fluginu seinkar. Hér geta farþegar séð hvort og hversu miklar bætur þeir eiga rétt á.
Auðvelt að sækja rétt sinn

Nokkuð er um að neytendur leiti aðstoðar fyrirtækja sem sækja bætur gegn þóknun en hún getur numið allt að 30% af bótafjárhæðinni. Virðist sem margir átti sig ekki á því hversu auðvelt er að sækja slíkar bætur. Að gefnu tilefni vilja Neytendasamtökin því minna neytendur á að í langflestum tilfellum er mjög auðvelt að sækja bætur vegna seinkunar eða aflýsingar á flugi.
Flest flugfélög bjóða upp á einföld form á netinu þar sem farþegi fyllir út nauðsynlegar upplýsingar. Það er síst minni fyrirhöfn að koma upplýsingunum beint til flugfélags en að koma þeim til fyrirtækis sem síðan tekur þóknun fyrir að koma þessum sömu upplýsingum áfram til flugfélagsins.
Skortir upplýsingar á flugseinkun.is
Neytendasamtökin hafa orðið vör við nýjan aðila á „flugbótamarkaðinum“; flugseinkun.is. Engar upplýsingar eru á vefsíðunni um nafn fyrirtækisins, heimilisfang, símanúmer eða netfang eins og lög gera ráð fyrir. Þá skortir mikilvægar upplýsingar um rétt neytenda til að falla frá samningi sem og hvaða úrræði eru í boði telji neytandi á sér brotið.
Samtökin hafa því sent ábendingu til Neytendastofu sem fer með eftirlit með lögum um neytendasamninga.
Ókeypis aðstoð
Ef neytandi telur sig eiga rétt á bótum ætti alltaf að byrja á því að gera kröfu á flugfélagið. Hér er hlekkur á kvörtunarsíðu Play og hér á Icelandair. Neytendasamtökin aðstoða sína félagsmenn ef upp koma vandamál og sjá endurgjaldslaust um milligöngu þegar þess er þörf.
Evrópska neytendaaðstoðin (ECC) aðstoðar neytendur þvert yfir landamæri þeim að kostnaðarlausu. Mörg mál sem koma inn á borð ECC eru einmitt vegna flugs og búa lögfræðingar þjónustunnar yfir mikilli reynslu á þessu sviði.
Samgöngustofa tekur við kvörtunum frá flugfarþegum og leysir úr ágreiningi svo sem vegna seinkana í flugi. Hér má sjá eyðublaðið sem fylla þarf út og hér má sjá ítarlegar upplýsingar um réttindi farþega.