Vöktun lögreglunnar á er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu
Brot 373 ökumanna voru mynduð á Miklubraut í Reykjavík frá miðvikudeginum 27. ágúst til mánudagsins 1. september.
Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Miklubraut í vesturátt, á gatnamótum við Grensásveg. Á fimm sólarhringum fóru 22.932 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100. Sextán ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Brot 62 ökumanna voru mynduð á Suðurströnd á Seltjarnarnesi .
Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Suðurströnd í vesturátt, á móts við Íþróttamiðstöðina. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 114 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59.

