• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Milljarða gjafagjörningur Reykjavíkurborgar til olíufélaganna

Dagur B. Eggertsson

Stóraukinn þrýsting þarf vegna Gasa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. september 2025
in Erlent, Fréttir
A A
0

“Alþjóðasam­fé­lagið hef­ur brugðist al­menn­ingi á Gasa – með hæg­um, hik­andi, ófull­nægj­andi og fálm­kennd­um viðbrögðum við dauða al­mennra borg­ara og tugþúsunda barna, þjóðern­is­hreins­un­um og hung­urs­neyð af manna­völd­um.”

Stóraukinn þrýsting þarf vegna Gasa

Alþjóðasam­fé­lagið hef­ur brugðist al­menn­ingi á Gasa – með hæg­um, hik­andi, ófull­nægj­andi og fálm­kennd­um viðbrögðum við dauða al­mennra borg­ara og tugþúsunda barna, þjóðern­is­hreins­un­um og hung­urs­neyð af manna­völd­um. Borg­ara­leg­ir innviðir hafa verið lagðir í rúst: vatns­veit­ur, land til mat­væla­fram­leiðslu, skól­ar og sjúkra­hús. Þeim fjölg­ar hratt sem telja fram­göngu hers og rík­is­stjórn­ar Ísra­els bera ein­kenni þjóðarmorðs, að alþjóðalög­um.

Stór­veldi grafa nú und­an alþjóðakerf­inu og al­menn­ing­ur um all­an heim miss­ir trú á því. Hörm­ung­arn­ar á Gasa eru ein ástæða þess. Þær eru sker­andi dæmi um að gjör­sam­lega hef­ur mistek­ist að veita al­menn­um borg­ur­um það skjól, mannúð og mann­rétt­indi sem alþjóðakerf­inu er ætlað, líka á stríðstím­um. Að stöðva blóðbaðið á Gasa er eitt mik­il­væg­asta viðfangs­efni sam­tím­ans. Það er löngu orðið svart­ur blett­ur í heims­sög­unni að það hafi ekki tek­ist. Fyr­ir utan dauðsföll og af­leiðing­ar fyr­ir al­menn­ing mun aðgerðal­eysi halda áfram að grafa und­an trausti og trú á því að lýðræðið virki og póli­tík sé til nokk­urra hluta nyt­sam­leg.

Það er auðvelt að finna til van­mátt­ar gagn­vart þess­ari stöðu. Orð eru ódýr. Fyr­ir bráðum tveim­ur árum gerði Alþingi þó vel í því að sam­ein­ast um álykt­un þar sem kallað var eft­ir taf­ar­lausu vopna­hléi. Hryðju­verk Ham­as frá 7. októ­ber voru for­dæmd en sömu­leiðis for­dæmdi Alþingi „all­ar aðgerðir ísra­elskra stjórn­valda í kjöl­farið sem brjóta gegn alþjóðleg­um mannúðarlög­um, þ.m.t. óheyri­lega þján­ingu, mann­tjón, mann­fall al­mennra borg­ara og eyðilegg­ingu borg­ara­legra innviða“. Það tók þáver­andi rík­is­stjórn tíma að finna takt­inn í að beita rödd Íslands á alþjóðavett­vangi. Ný rík­is­stjórn hef­ur beitt sér meira og mark­viss­ar eins og Bald­ur Þór­halls­son stjórn­mála­fræðipró­fess­or vakti at­hygli á í Silfri Eg­ils sl. mánu­dag. Ísland hef­ur skipað sér í sveit þeirra þjóða Evr­ópu sem tala nú skýr­ast og þrýsta á um aðgerðir. Um þær hef­ur þó ekki skap­ast samstaða.

Frammi fyr­ir þessu hlýt­ur rík­is­stjórn­in að kort­leggja hvaða leiðir eru til að auka þrýst­ing­inn. All­ir eru sam­mála um að Ham­as þarf að skila gísl­um, leggja niður vopn og láta af völd­um. Hörm­ung­um al­menn­ings á Gasa og hung­urs­neyð verður þegar að linna og til þess þarf að auka þrýst­ing á Ísra­el. ESB tók í sum­ar sam­an yf­ir­lit um leiðir til að auka þrýst­ing, kosti þeirra og galla, til að tryggja mannúðaraðstoð, vopna­hlé og endi átak­anna. Það get­um við einnig gert. ESB hef­ur ekki náð sam­stöðu um að beita refsiaðgerðum eða segja upp fríversl­un­ar­samn­ing­um. Það get­um við tekið upp og byggt banda­lög, í sam­starfi við aðrar þjóðir. Ísland er ekki stór­veldi en get­ur unnið með öðrum og beitt sinni skýru rödd og ég full­yrði að þar hef­ur rík­is­stjórn­in þing og þjóð að baki sér.

Höf­und­ur er alþing­ismaður Reyk­vík­inga. dag­ur@alt­hingi.is

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    32 deilingar
    Share 13 Tweet 8
  • Viðvörun – Frost um allt land og rok framundan

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Óttast eldgos á Tenerife

    161 deilingar
    Share 64 Tweet 40
  • Sturluð staðreynd

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?