• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

Lögreglan

Maður með öxi, rán, stunguvopn og fleira

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hér eru helstu atriði úr dagbók LRH frá kl.17-05. Þegar þetta er ritað eru fjórir vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 49 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.

Lögreglustöð 1

  • Lögregla boðuð í matvöruverslun vegna þjófnaðar. Málið afgreitt á vettvangi.
  • Tilkynnt um rán við verslunarmiðstöð þar sem ungmenni rændu annað ungmenni. Veittust tveir einstaklingar að einum og slógu með áhaldi. Málið í rannsókn.
  • Tveir einstaklingar handteknir grunaðir um húsbrot. Báðir víðáttuölvaðir og ekki skýrsluhæfir og því vistaðir í fangaklefa þar til unnt sé að taka af þeim skýrslu. Þá eru sömu einstaklingar grunaðir um að samskonar brot fyrr um daginn.
  • Tilkynnt um einstakling með öxi við skemmtistað að veitast að fólki. Sá farinn er lögregla kom á vettvang. Leitað var í nágranni án árangurs.
  • Óskað aðstoðar lögreglu við að vísa óvelkomnum einstaklingi út af ölhúsi.
  • Tilkynnt um einstakling í annarlegu ástandi, ber að ofan og skólausan að halda vöku fyrir fólki með öskrum og látum. Hann ósamvinnufús og viðskotaillur er lögregla gaf sig á tal við hann. Vistaður í fangaklefa þar til unnt sé að taka af honum skýrslu.
  • Óskað aðstoðar lögreglu vegna einstaklings í félagslegu úrræði sem var sagður ógnandi með stunguvopn meðferðis. Í ljós kom að um misskilning var að ræða og málið leyst á vettvangi.
  • Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Í viðræðum við ökumann grunuðu lögreglumenn að sá væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem síðar reyndist vera. Ökumaðurinn var einnig sviptur ökuréttindum. Laus að lokinni sýnatöku.
  • Tilkynnt um eld í fjölbýlishúsi. Lögregla og slökkvilið boðað á vettvang. Vettvangsvinna enn í gangi er þetta er ritað.

Lögreglustöð 2

  • Óskað aðstoðar lögreglu vegna hugsanlegs fjármunabrots þar sem einstaklingur hafði notað greiðslukort í eigu annars án leyfis. Málið í rannsókn.
  • Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Ökumaður reyndist vera að aka án gildra ökuréttinda.
  • Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Ökumaður reyndist vera að aka sviptur ökuréttindum.
  • Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Í viðræðum við ökumann grunuðu lögreglumenn að sá væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem síðar reyndist vera. Ökumaðurinn var einnig sviptur ökuréttindum. Þá reyndist hann hafa meðferðis í bifreið sinni ætluð fíkniefni. Laus að lokinni sýnatöku.

Lögreglustöð 3

  • Tilkynnt um þjófnað á skráningarnúmerum bifreiðar. Málið í rannsókn.
  • Tilkynnt um samkvæmishávaða. Húsráðanda gert að lækka.
  • Óskar eftir lögreglu vegna skemmdarverka á nokkrum ferðavögnum. Málið í rannsókn.
  • Tilkynnt um óvelkominn einstakling í verslunarmiðstöð. Sá gat ekki framvísað skilríkjum eða  veitt upplýsingar um hver hann væri er lögregla óskaði eftir því og því handtekinn. Vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
  • Ökumaður bifreiðar stöðvaður við almennt umferðareftirlit. Í viðræðum við ökumann grunuðu lögreglumenn að sá væri undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem síðar reyndist vera. Laus að lokinni sýnatöku

Lögreglustöð 4

  • Óskað eftir aðstoð lögreglu vegna líkamsárásar. Minniháttar áverkar á brotaþola og málið í rannsókn.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    30 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Viðvörun – Frost um allt land og rok framundan

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Óttast eldgos á Tenerife

    161 deilingar
    Share 64 Tweet 40
  • Sturluð staðreynd

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    23 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?