„Það eru engar skattahækkanir í þessu frumvarpi aðrar en þær sem áður hafa verið kynntar. Við höfum bara kynnt breytingar á veiðigjöldum,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra eftir að hann kynnti fjárlagafrumvarp næsta árs.
Ríkissjóður verður rekinn með 15 milljarða halla á næsta ári, ekki 26 milljarða halla eins og ráð var fyrir gert fyrr á þessu ári. Daði Már sagði í viðtali við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann að stefnt væri að hallalausum ríkissjóði 2027.
Nokkuð var rætt síðustu daga um að ríkisstjórnin myndi ef til vill hækka skatta til að draga úr fjárlagahalla. Daði Már sagði að svo yrði ekki: „Hvorki skattahækkanir á fólk né fyrirtæki.“
Umræða

