Hugleiðingar veðurfræðings
Lægðin sem stjórnað hefur veðrinu hjá okkur síðustu daga er nú á Grænlandssundi og fjarlægist smám saman. Í dag hefur hún beint til okkar suðvestan- og sunnanátt, víða kaldi eða stinningskaldi og skúrir. Seinnipartinn styttir svo upp á Norðaustur- og Austurlandi. Hægari vindur í kvöld.
Á morgun ganga næstu skil vestur yfir landið. Þá gengur í austan og norðaustan 5-13 m/s og fer að rigna í flestum landshlutum, fyrst um landið austanvert. Talsverð rigning um tíma á Austfjörðum. Eftir að skilin ganga yfir dregur úr vætu, en það gerist síðdegis á norðausturhluta landins og annað kvöld vestantil. Hiti 8 til 15 stig.
Á fimmtudag er svo útlit fyrir áframhaldandi austan- og norðaustanátt með vætu um landið austanvert, en lengst af þurrt og milt suðvestanlands. Spá gerð: 09.09.2025 15:53. Gildir til: 11.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðvestan og sunnan 8-15 m/s með skúrum. Styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Lægir í kvöld.
Gengur í austan og norðaustan 5-15 á morgun og fer að rigna allvíða, fyrst suðaustantil. Hvassast syðst. Talsverð úrkoma á Austfjörðum um tíma. Dregur úr vætu norðaustanlands síðdegis, og vestantil annað kvöld. Hiti 8 til 16 stig. Spá gerð: 09.09.2025 15:47. Gildir til: 11.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Norðaustan og austan 8-15 og dálítil væta með köflum, en samfelld úrkoma syðst fram yfir hádegi. Rigning norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 8 til 15 stig, mildast suðvestantil.
Á föstudag:
Norðan 10-15 m/s. Rigning eða súld norðan- og austanlands og hiti 6 til 10 stig, en úrkomulítið sunnanlands með hita 10 til 16 stig yfir daginn.
Á laugardag:
Norðaustanátt og rigning með köflum, einkum norðvestantil en skúrir um landið suðvestanvert. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á sunnudag:
Norðaustan- og austanátt 5-13 m/s. Rigning um sunnanvert landið en skúrir norðanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Á mánudag:
Norðaustan- og norðanátt og rigning eða súld með köflum, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.
Spá gerð: 09.09.2025 08:38. Gildir til: 16.09.2025 12:00.

