Börn verða fyrir bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu aðstandenda. Þá er stór hluti þess andlega ofbeldis vegna tálmunarmála. Allt að 15.000 foreldrar telja sig útilokaða á Íslandi þar sem lögheimilsforeldri (oftast móðir) tálmar samskipti við föður, í flestum tilvikum. Barnaverndir og löggjafinn hefur brugðist þessum börnum sem og opinberar stofnanir.
Brot foreldra gegn börnum voru helmingi fleiri
Fleiri börn en áður verða fyrir heimilisofbeldi, samkvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra. Verkefnastjóri afbrotavarna segir vitundarvakningu um áhrif heimilisofbeldis á börn geta skýrt fjölgunina.
Ríkisútvarpið greindi frá málinu og þar kemur fram að lögregluembætti landsins hafi sinnt 612 málum þar sem grunur var um heimilisofbeldi fyrstu sex mánuði þessa árs. Það er aukning um tíu prósent frá sama tíma í fyrra en fimm prósenta aukning ef miðað er við meðaltal síðustu þriggja ára.
Mest fjölgaði brotum gegn systkinum milli ára, fjöldi þeirra tvöfaldaðist, og brot foreldra gegn börnum voru tæplega helmingi fleiri.
Eygló Harðardóttir, verkefnastjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, segir hugsanlegt að vitundarvakning í samfélaginu skýri fjölgun tilkynntra brota. Þá hafi lögregla breytt verklagi í heimilisofbeldismálum þannig að börn eru oftar skráð brotaþolar þó að þau verði ekki fyrir beinu líkamlegu ofbeldi.
„Með aukinni vitund og aukinni þekkingu og áherslu sem hefur verið lögð á heimilisofbeldi með verklagi lögreglunnar erum við sem samfélag að gera okkur alltaf betur og betur grein fyrir hversu alvarleg áhrif það hefur á börn að búa við heimilisofbeldi, hvort sem þau eru þolendur sjálf, beinir þátttakendur í ágreiningi eða brotunum [eða ekki],“ segir Eygló.
,,Afleiðingar fyrir börn og foreldra geta verið alvarlegar og langvarandi“

