• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi

Tímamótunum var fagnað í höfuðstöðvum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Genf í dag.

Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
15. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um takmörkun ríkisstyrkja í sjávarútvegi tók gildi í dag þegar tilskyldum fjölda aðildarríkja, sem hafa fullgilt hann, var náð. Ísland var eitt af fyrstu aðildarríkjum stofnunarinnar til að fullgilda samninginn og tilkynnti formlega um það 23. maí 2023. 

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp í gegnum fjarfundarbúnað á sérstakri hátíðarathöfn sem fram fór af þessu tilefni, ásamt fleiri þjóðhöfðingjum ríkja sem hafa fullgilt sammninginn. Ngozi Okonjo-Iweala, framkvæmdastjóri alþjóðaviðskiptastofnunarinnar stýrði viðburðinum. 

„Þetta er stór áfangi sem stuðlar að sjálfbærni hafsins og skapar grundvöll fyrir ábyrgari nýtingu fiskistofna á heimsvísu,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, í tilefni þess að samningurinn hefur nú tekið gildi. „Saga Íslands sýnir að hægt er að byggja upp blómlegt samfélag með sjálfbærri stjórnun fiskveiða. Nú höfum við tækifæri til að miðla þeirri reynslu og leggja okkar af mörkum fyrir komandi kynslóðir.“

Samningurinn markar tímamót í baráttunni fyrir sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda og er fyrsti alþjóðlega bindandi samningurinn sem beinist að ríkisstyrkjum sem stuðla að ofveiði og veiði á svæðum sem lúta engri fiskveiðistjórnun.

Ísland var eitt þeirra ríkja sem hleypti samningaviðræðunum úr vör á sínum tíma og hefur allt frá upphafi verið í fararbroddi viðræðnanna. Þannig gegndi fastafulltrúi Íslands í Genf, Einar Gunnarsson sendiherra, stöðu formanns samninganefndar viðræðnanna frá 2022 til ársins í ár.  Reynsla Íslands af uppbyggingu sjálfbærs fiskveiðistjórnunarkerfis, sem stuðlar einnig að hagsæld í greininni, hefur gegnt mikilvægu hlutverki í viðræðunum með því að sýna fram á að sjálfbær stjórnun fiskistofna er lykillinn að efnahagslegri velferð til lengri tíma.

Samningurinn kveður einnig á um aðstoð við fátækari aðildarríki WTO við undirbúning og uppbyggingu getu til þess að undirgangast skuldbindingar samningsins. Þar mun Ísland gegna mikilvægu hlutverki.

Ísland hvetur aðildarríki WTO til að halda áfram viðræðum um viðbótarreglur sem lúta að ríkisstyrkjum sem stuðla að umframveiðigetu og ofveiði.

  • Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi - mynd úr myndasafni númer 1
  • Alþjóðasamningur um ríkisstyrki í sjávarútvegi tekur gildi - mynd úr myndasafni númer 2
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Þvílíkt sturluð laun hjá elítunni!

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Óttast eldgos á Tenerife

    159 deilingar
    Share 64 Tweet 40
  • Sturluð staðreynd

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?