Félag heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa varar við áformum umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um að leggja niður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga.
Atvinnuvegaráðherra og umhverfisráðherra kynntu í byrjun mánaðar breytingar sem er meðal annars ætlað að bregðast við áminningum eftirlitsstofnunar EFTA um að fyrirkomulag matvælaeftirlits á Íslandi standist ekki kröfur EES-samningsins. Fjallað var ítarlega um málið á Rúv.is
Ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum færist til Umhverfis- og orkustofnunar og ábyrgð á eftirliti með matvælum færist til Matvælastofnunar. Það hefur til þessa verið á ábyrgð heilbrigðiseftirlita.
„Heilbrigðiseftirlit hefur frá árinu 1901 verið hornsteinn laga um hollustuhætti og nærtækara væri að efla þann þátt frekar en að fella hann niður.“ Segir Félag heilbrigðis- og umhverfisfulltrúa.

