Ég er elíta
Mér var einhvern tímann úthlutað heimilislækni. Í dag fann ég til krankleika og datt í hug að leita til læknis. Ég fór inn á Heilsuvera.is eins og kvatt er til, og fann þar flipa fyrir Tímabókun og var boðið upp á leghálsskimun, bæði í Reykjavík og á Mývatni, getnaðarvarnarráðgjöf og viðtöl við nokkra lækna en bara ekki minn.

Svo ég hringdi í heilsugæsluna og fékk samband. Þar var mér sagt að tímapantanir væru bara gerðar á heilsuveru, en ekki undir ‚Bóka tíma‘ heldur undir ‚skilaboð‘ og þar ætti ég að velja ‚eftirfylgd meðferðar‘ hvort sem um einhverja eftirfylgd væri að ræða eða ekki. Það er prýðisaðferð til að létta á álagi að koma í veg fyrir að sjúklingar séu að trufla kerfið.
Ég loggaði mig strax út áður en skaði hlytist af. Þá datt mér í hug að sjá hvort það væri ekki bara skilvirkast að láta grafa mig strax og fór inn á http://xn--kirkjugarar-xdb.is/ og fann þar t.d. eyðublað fyrir ‚beiðni um líkbrennslu‘ með tveimur klikkum. Þar get ég sett inn nafn, lögheimili og kennitölu og undir stendur „Kyrrð og kærleikur“.
Þetta finnst mér almennilegt, aðgengilegt og meira að segja vinalegt. Enda er mikilvægt að fólki sé boðið auðvelt aðgengi að mikilvægri þjónustu. Ég er byrjaður að fylla eyðublaðið út en er svo latur til slíks að ég er að farinn að spá í hvort ég eigi að harka bara af mér.
Mér var reyndar einu sinni sagt að manni sé stundum hleypt inn á bráðamóttöku svo fremi maður sé hálfdauður, og að því tilskyldu að maður hafi beðið nógu lengi. Á það kannski inni ef mér skildi versna.

