Helstu atriði úr dagbók LRH frá 17-05. Þegar þetta er ritað eru tveir vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 48 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.
Lögreglustöð 1
Tilkynnt um víðáttuölvaðan mann í miðborginni. Hann fluttur á lögreglustöð vegna ástands.
Maður ósáttur við að hafa verið vísað út af öldurhúsi í miðborginni og fór að berja á rúður. Honum vísað á brott.
Eldamennska fór úr böndunum með þeim afleiðingum að reykræsta þurfti húsið.
Umferðaróhapp en engin slys á fólki. Ein bifreið óökufær og dregin af vettvangi.
Ökumaður handtekinn grunaður um fíkniefnaakstur. Laus að sýnatöku lokinni.
Lögreglustöð 2
Mannlaus bifreið rann niður brekku og utan í nokkrar aðrar bifreiðar á ferðalagi sínu.
Maður handtekinn grunaður um eignaspjöll. Vistaður í fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann vegna málsins.
Lögreglustöð 3
Tilkynnt um þjófnað í verslun. Afgreitt á vettvangi.
Ölvaður ökumaður handtekinn og fluttur á lögreglustöð í hefðbundið ferli.
Þjófnaður í matvöruverslun. Afgreitt á vettvangi.
Áflog milli manna á knæpu. Lögregla stillti til friðar.
Lögreglustöð 4
Innbrot á veitingastað. Málið er í rannsókn.

