Karlmaður lést í bílslysi við gatnamót Vatnagarða og Sundagarða í gærkvöldi. Frá því er greint á fréttavefnum mbl.is en slysið átti sér stað um níuleytið.
Talið er að maðurinn hafi misst stjórn á bílnum en féll niður þar sem áður var athafnasvæði Hringrásar. Var maðurinn látinn þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.
Umræða