Hugleiðingar veðurfræðings
Röð lægða sem nálgast landið úr suðri, stýra veðri hjá okkur næstu daga með nokkuð hefðbundnu haustveðri.
Í dag verður suðlæg átt 8-18 m/s, hvassast norðvestantil. Skúrir á sunnan- og vestanverðu landinu, en annars úrkomulítið. Smám saman dregur úr skúrum, en snýst í vaxandi suðaustanátt sunnanlands og fer að rigna seinnipartinn. Búast má við talsverðri eða mikilli úrkomu í kvöld og nótt, einkum á Suðausturlandi. Hiti 9 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.
Á morgun gengur í suðaustan hvassviðri, en hægari norðvestantil. Rigning með köflum, en talsverð úrkoma suðaustanlands. Hiti breytist lítið. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna rigningu og vinds.
Á laugardag verður minnkandi vindur með skúrum, vestlæg átt 3-8 m/s síðdegis. Lengst af þurrt fyrir austan, en alveg austast á landinu eru líkur á smávætu seinnipartinn. Hiti 7 til 14 stig, mildast norðaustanlands.
Á sunnudag gera spár ráð fyrir suðlægum áttum. Dálítil rigning eða súld, en yfirleitt bjart austantil. Hiti breytist lítið. Hvessir og þykknar upp vestanlands undir kvöld.
Á mánudag er útlit fyrir næstu lægð með hvassviðri og talsverðri eða mikilli rigningu.
Spá gerð: 25.09.2025 05:25. Gildir til: 26.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Suðlæg átt 8-15 m/s og dregur úr skúrum, en fer að rigna seinnipartinn og hvessir aftur í kvöld. Útlit fyrir mikla rigningu suðaustanlands.
Sunnan og suðaustan 13-20 m/s á morgun, en hægari norðvestantil. Rigning, um tíma talsverð suðaustanlands, en styttir upp á Norðurlandi.
Hiti 9 til 15 stig, mildast norðan heiða.
Spá gerð: 25.09.2025 04:20. Gildir til: 26.09.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Suðaustan 13-23 m/s, hvassast suðvestan- og austantil. Rigning eða súld, en talsverð úrkoma um tíma á suðaustanverðu landinu. Styttir upp á Norðurlandi. Dregur úr vindi um kvöldið. Hiti 11 til 17 stig.
Á laugardag:
Suðlæg átt 5-13 og skúrir, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 8 til 13 stig.
Á sunnudag:
Suðlæg átt 5-13 og stöku skúrir, en þurrt að mestu norðaustantil. Vaxandi suðaustanátt síðdegis, 13-20 m/s seint um kvöldið. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Suðaustanátt og talsverð rigning, einkum á Suðausturlandi, en lengst af þurrt norðaustanlands. Dregur úr vætu um kvöldið. Hiit 9 til 14 stig.
Á þriðjudag:
Suðvestanátt og skúrir, en bjart með köflum norðaustanlands. Hiti 8 til 13 stig.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæga átt. Rigning á sunnanverðu landinu, um tíma talsverð, en úrkomuminna norðaustantil. Áfram milt í veðri.
Spá gerð: 24.09.2025 20:15. Gildir til: 01.10.2025 12:00.

