• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 24. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Ný nefnd um eftirlit með störfum lögreglu

Hraðakstur við grunnskóla – 1.137 óku of hratt

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. september 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Þegar grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu hefja göngu sína á nýjan leik eftir sumarleyfi er lögreglan þar jafnan við umferðareftirlit og svo var einnig þetta árið. T.a.m. hefur sérstakur myndavélabíll embættisins mælt hraða ökutækja við fjölda grunnskóla, eða í næsta nágrenni þeirra (gönguleiðir skólabarna) víða í umdæminu núna í september. Myndavélabílinn var einnig á ferðinni við grunnskólana í maí, en ljóst er að ökumenn þurfa að standa sig miklu betur þegar kemur að því að virða leyfðan hámarkshraða.

Við þessar hraðamælingar í maí og september voru samtals 1.137 ökumenn staðnir að hraðakstri í og við grunnskólana og voru hinir sömu sektaðir fyrir vikið. Í grófasta tilvikinu var um ræða bifreið, sem var ekið á 70 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 30.

Um var að ræða alls 38 hraðamælingar og náði vöktunin til 5.048 ökutækja. Brothlutfallið var mishátt, eða lágt, eftir götum en að meðaltali ók rúmlega fimmtungur ökumanna of hratt hverju sinni og það er alls ekki góð niðurstaða.

Af þessum fyrrnefndu 1.137 ökumönnum voru 984 þeirra staðnir að hraðakstri þar sem leyfður hámarkshraði er 30, en þar var meðalhraði hinna brotlegu 43,5 km/klst. Hinir 153 ökumennirnir óku að meðaltali á 52,5 þar sem er 40 km hámarkshraði og fengu þeir sömuleiðis sekt.

Lögreglan minnir ökumenn, enn og aftur, á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem hófu skólagöngu í sumarlok.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    155 deilingar
    Share 62 Tweet 39
  • Sturluð staðreynd

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk

    154 deilingar
    Share 62 Tweet 39
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?