Forsætisráðuneytið býður til málþings þriðjudaginn 11. nóvember nk. kl. 13−16 undir yfirskriftinni Þarf að uppfæra embættismannakerfið? Þar verður fjallað um skýrslu og tillögur starfshóps um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna. Málþingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun flytja opnunarávarp og þrír erlendir sérfræðingar halda erindi í fyrri hluta málþingsins sem verður á ensku. Í seinni hlutanum, sem verður á íslensku, munu fulltrúar starfshópsins kynna tillögur hans og helstu niðurstöður en málþinginu lýkur á pallborðsumræðum.
Málþingið er öllum opið og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Um er að ræða annað málþingið sem er haldið í tengslum við vinnu starfshópsins en forsætisráðuneytið og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála héldu málþing í mars 2023 undir yfirskriftinni Embættismaðurinn í nútímasamfélagi.
Dagskrá málþingsins:
Kl. 13:00 Opnun
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra
Hæfni stjórnsýslunnar til að takast á við nútímaáskoranir
Daniel Gerson, yfirmaður vinnumarkaðsmála og stjórnunar hjá OECD
Reynslan af sérstakri ráðherranefnd um málefni embættismanna
Bo Smith, fyrrverandi ráðuneytisstjóri Danmörku
Miðlæg skrifstofa um málefni embættismanna
Sonja Hamhuis, sérfræðingur, embættismannadeildinni í innanríkisráðuneyti Hollands
Kl. 14:30 Kaffihlé
Kl. 14:45
Kynning á tillögum í embættismannaskýrslunni
Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
Niðurstöður rannsóknar á reynslu ráðherra og ráðuneytisstjóra
Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
Pallborð
- Eygló Harðardóttir, verkefnisstjóri afbrotavarna hjá ríkislögreglustjóra, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
- Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra
- Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
- Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og formaður Félags forstöðumanna ríkisstofnana
- Dr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Ólafur Þ. Harðarson

