Rúmlega fertugur hálf-íslenskur karlmaður, Guðmundur Mogensen, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í morgun fyrir að myrða konu á sjötugsaldri á heimili hennar í Akalla, norður af Stokkhólmi.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá og í ítarlegri frétt segir að maðurinn hafi viðurkennt morðið í færslu á Instagram en hann eyddi henni stuttu síðar. Við réttarhöldin viðurkenndi hann hins vegar að hafa banað konunni.
Sænska ríkissjónvarpið hefur upp úr dómsorði að morðið hafi verið framið að undirlögðu ráði; konan hafi verið skotin ítrekað í höfuðið. Aðstæðurnar séu þess eðlis að ekkert annað en lífstíðardómur hafi komið til greina.
Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Þetta helst á Rás 1 í september. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð enda enn eitt dauðsfallið í gengjastríði sem þar hefur geisað undanfarin ár. Sænskir fjölmiðlar segja að málið sé hefndaraðgerð og tengist syni konunnar, sem er leiðtogi í einu gengjanna.

