Hvað varð um fjármuni til loftslagsaðgerða?

,,Í kjölfar þess að fyrirspurn var svarað um þá fjármuni sem varið var til loftslagsaðgerða á árunum 2023 og 2024 sem voru samtals 54 milljarðar kr. eftir því sem ég kemst næst, þá óskaði ég eftir að fá gróflega sundurliðun á upphæðinni.“ Segir Sigurjón Þórðarson alþingismaður.
,,Mér finnst vanta verulega mikið upp á svörin þar sem aðeins er gert grein fyrir um 2,5% af upphæðinni.“
Hér að neðan er svarið sem Sigurjón Þórðarson fékk á Alþingi Íslendinga en í því er aðeins gert grein fyrir brotabroti af þeim 54 milljörðum sem um ræðir:
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra svarar fyrirspurn frá Sigurjóni Þórðarsyni, alþingismanni, um stuðning til aðgerða í loftslagsmálum.
Fyrirspurnin hljóðar svo: Hvaða aðilar fengu hærri greiðslu eða stuðning en 3 millj. kr. á ári til aðgerða í loftslags málum árið 2023 annars vegar og 2024 hins vegar og hvaða upphæð fékk hver þeirra? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um skattstyrki, samgöngubætur, landbætur eða beinar greiðslur var að ræða.

Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur


