Hugleiðingar veðurfræðings
Hæðir suður af landinu og yfir Grænlandi, ásamt lægð norðaustur af Jan Mayen, beina vestlægum áttum yfir okkur í dag með norðvestan strekkingi bæði syðst og austantil fram eftir degi.
Hægbreytilegri vindur verður víða á morgun og bjart að mestu, en 3-10 norðvestan og austantil. Þykknar upp með skúrum eða éljum síðdegis, fyrst suðvestantil.
Á sunnudag bætir í vind og úrkomu með norðan og norðaustan 10-15 síðdegis, fyrst norðantil, en 13-18 suðaustantil um kvöldið. Hægari vindur suðvestantil.
Í næstu viku er útlit fyrir svalar norðlægar áttir með éljum eða snjókomu víða. Kalt í veðri. Spá gerð: 15.11.2025 06:15. Gildir til: 16.11.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu
Vestlæg átt 13-18 m/s og skýjað og dálítil él víða um land fram undir morgun, en hægari suðvestantil. Lægir um hádegi. Breytileg átt 8-13 sunnan- og austantil síðdegis, en hægari um vestanvert landið. Léttir víða til, einkum á Norður- og Austurlandi. Suðlæg eða breytileg átt 3-10 á morgun, en strekkingur norðvestan- og austantil fram eftir degi.
Stöku skúrir eða slydda um vestanvert landið síðdegis, en snjókoma eða él norðantil og inn til landsins. Úrkomulítið austantil. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost inn til landsins. Kólnar á morgun. Spá gerð: 15.11.2025 05:28. Gildir til: 16.11.2025 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Breytileg átt 3-8 m/s en strekkingur norðaustantil og á Austfjörðum fram eftir degi. Skýjað með köflum sunnan- og vestanlands og sums staðar dálítil slydda eða snjókoma, en rigning við ströndina seinni partinn. Hiti um eða yfir frostmarki. Bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en þykknar upp um kvöldið. Frost 1 til 8 stig.
Á mánudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13. Skýjað með köflum og stöku él um landið norðanvert. Snjókoma eða slydda suðaustantil, en dálítil él suðvestanlands framan af degi. Léttir til um vestanvert landið síðdegis. Frostlaust við suðurströndina, annars frost 0 til 7 stig.
Á þriðjudag:
Norðlæg átt og stöku él við norður- og austurströndina, en yfirleitt bjart í öðrum landshlutum. Frost 2 til 12 stig.
Á miðvikudag:
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað en þykknar upp á vestanverðu landinu. Frost 2 til 14 stig, mest inn til landsins, en hlýnar heldur við Vesturströndina.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðlæga átt 5-13 með snjókomu og síðar rigningu víða um land, en einkum sunnan- og vestantil. Hiti 2 til 8 stig síðdegis.
Á föstudag:
Útlit fyrir vestlægar áttir og víða rigningu eða slyddu, en snjókomu síðdegis. Þurrt að mestu suðvestan- og sunnantil. Kólnar heldur. Spá gerð: 14.11.2025 20:55. Gildir til: 21.11.2025 12:00.

