Stórhættulegar aðstæður!
Lögreglan á Blönduósi vekur athygli á lífshættulegu athæfi ungmennis þar sem viðkomandi labbar út á ís í ánni Blöndu sem er ein af straumhörðustu ám á Íslandi.
,,Myndin sýnir barn á þunnri íshellu við Blöndu. Áin er ekki leiksvæði og getur verið lífshættuleg. Vinsamlega brýnið fyrir börnum að halda sig frá ísnum og ánni.“ Segir í athugasemd lögreglu um athæfið.

Umræða

