• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra Mynd: Sigurjón Ragnar

Sameining Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
18. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra áformar að leggja fram á vorþingi 2026, frumvarp þar sem lagt er til að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í eina stofnun.

Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir tilfærslu á verkefnum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga hvað varðar eftirlit með matvælum til stofnunarinnar. Áform frumvarpsins eru í samræmi við áherslur sem birtast í stjórnarsáttmála um einföldun stjórnsýslu, hagræðingu í ríkisrekstri og aukna skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.

Í fýsileikagreiningu sem unnin var fyrir atvinnuvegaráðuneytið vegna mögulegrar sameiningar Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs kom fram að fyrrgreindar stofnanir sinna allar opinberu eftirliti á sviði matvæla sem megi samþætta enda mikil líkindi í viðfangsefnum og starfsstöðvar reknar á svipuðum stöðum á landinu.

Að auki skapi sameining forsendur fyrir samræmda stefnumótun og framkvæmd í matvælaframleiðslu og fiskveiðum. Jafnframt skapist tækifæri til að bæta þjónustu, draga úr skrifræði og bæta þjónustu við atvinnulífið. Horft er til þess að til verði öflug eftirlitsstofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða þar sem starfsstöðvar verði staðsettar um allt land.

Á haustmánuðum kynntu atvinnuvegaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra áform um einföldun regluverks, þar sem gert er ráð fyrir að færa eftirlit með matvælaframleiðslu, hollustuháttum og mengunarvörnum til viðeigandi ríkisstofnana.

Ráðgert er að matvælaþáttur þess verkefnis verði hluti af fyrrgreindu frumvarpi atvinnuvegaráðherra. Atvinnuvegaráðuneytið og umhverfis- orku og loftslagsráðuneytið munu áfram vinna saman til tryggja skilvirka og árangursríka tilfærslu frá sveitarfélögunum varðandi mannauðsmál o.fl.

„Einföldun stjórnsýslu og sameining stofnana eitt af forgangsmarkmiðum ríkisstjórnarinnar og þessi framkvæmd er í samræmi við það“ segir atvinnuvegaráðherra. „Áherslan er sett á skilvirka og gagnsæja þjónustu, stafræna þróun og öfluga vinnustaði hringinn í kringum landið í þágu vaxtar atvinnulífsins og verðmætasköpunar. Hin nýja stofnun verður eftirsóknarverður vinnustaður fyrir okkar færustu sérfræðinga á þessu sviði sem bjóðast jafnfram tækifæri til starfsþróunar um allt land“

Fyrirhugaðar breytingar hafa þegar verið kynntar starfsmönnum viðkomandi stofnanna. Gert er ráð fyrir að ný sameinuð stofnun taki til starfa í janúar 2027.

Áform um lagasetningu má sjá á samráðsgátt stjórnvalda.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    137 deilingar
    Share 55 Tweet 34
  • Sturluð staðreynd

    29 deilingar
    Share 12 Tweet 7
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?