Hámarks styrkhlutfall skal vera 40% af heildarkostnaði vegna fjárfestingar og styrkfjárhæð í hverri úthlutun skal nema að hámarki 10 milljónum króna.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hafa ákveðið að ráðstafa 80 milljónum króna í Loftslags- og orkusjóð til fjárfestinga í tækjakaupum sem stuðla að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda vegna áburðarnotkunar í landbúnaði. Ráðstöfunin er í samræmi við markmið ríkisstjórnarinnar um eflingu nýsköpunar í landbúnaði og markvissari stuðning við bændur.
Nákvæmari og markvissari áburðardreifing skilar sér í bættri nýtingu næringarefna, minni losun gróðurhúsalofttegunda og bættum búrekstri. Áhersla er lögð á að styrkja verkefni sem falla að hlutverki sjóðsins. Forgangur er veittur þeim verkefnum sem eru talin skila mestum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda (koldíoxíð-ígilda) í hlutfalli við upphæð styrks. Heimilt er að veita styrki til kaupa á búnaði sem keyptur er í samstarfi aðila, svo sem í gegnum búnaðarfélag eða verktaka sem annast áburðardreifingu fyrir bændur. Dæmi um styrkhæf tækjakaup eru:
- GPS tækni fyrir bætta nákvæmni við áburðardreifingu
- Tækni til niðurfellingar/-lagningar á áburði
- Önnur tæki sem bætt geta nýtingu áburðar og minnkað áburðarnotkun í landbúnaði
Hámarks styrkhlutfall skal vera 40% af heildarkostnaði fjárfestingar án virðisauka. Styrkfjárhæð í hverri úthlutun skal nema að hámarki tíu milljónum króna fyrir hvern umsækjanda.
Styrkumsóknir eru afgreiddar samkvæmt um Loftslags- og orkusjóð. Umsóknarfrestur er til 2025. Hægt er að sækja um á síðu Loftslags- og orkusjóðs.

