• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 22. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

Fréttatilkynning lögreglu

Leitað eftir 30 lögreglumönnum

Þrjátíu stöður lögreglumanna lausar til umsóknar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. nóvember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir drífandi og metnaðarfullum lögreglumönnum til starfa. Alls eru lausar til umsóknar þrjátíu stöður. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í almennri löggæslu. Sett verður í stöðurnar frá 1. febrúar 2026 í sex mánuði með skipun í huga að reynslutíma loknum.

Auglýsingin birtist í Lögbirtingablaðinu. Löggæslusvið embættis sinnir almennri löggæslu en undir sviðið heyra lögreglustöðvar embættisins auk landamæradeildar, aðgerðardeildar og umferðardeildar. Lögreglustöðvar embættisins eru fjórar og dreifast yfir allt starfssvæðið. Markmið stöðvanna er að færa lögreglu eins nálægt sínu nær umhverfi og kostur er enda leggur embættið áherslu á að þekkja samfélagið og skynja hvaða þjónustu það þarfnast.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Gildi LRH eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI. Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð.

Í samræmi við reglugerð nr. 1051/2006 um starfstig innan lögreglu; m.a. halda uppi lögum og reglu í samræmi við lög, reglur og fyrirmæli, tryggja réttaröryggi borgara með störfum sínum og framkomu, greiða götu þeirra eftir því sem við á og aðstoða þegar hætta steðjar að eða slys ber að höndum, sinna verkum sem lögreglustjóri felur honum s.s. á sviði forvarna og annars.

Hæfniskröfur.

Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol.
  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Lausnamiðað og jákvætt viðhorf.
  • Frumkvæði og drifkraftur.
  • Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Frekari upplýsingar um starfið.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Sækja skal um stöðurnar með rafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu hefur verið tekin.

Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2025.

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    136 deilingar
    Share 54 Tweet 34
  • Sturluð staðreynd

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Slökkviliðið berst við elda í Kópavogi

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    27 deilingar
    Share 11 Tweet 7
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?