Innflytjendaráð stendur fyrir morgunverðarfundi á alþjóðlega mannréttindadeginum þann 10. desember næstkomandi kl. 9:00-11:00. Fundurinn fer fram á Reykjavík Natura hótelinu og flutt verða margvísleg erindi sem öll tengjast málefnum innflytjenda.
Dagskránni lýkur með því að Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála. Morgunverðarfundurinn er öllum opinn en gestir eru beðnir um að skrá sig fyrir fram: Skráning á morgunverðarfund.
Innflytjendur og samfélagið
8:30 Morgunverður og skráning
Margmiðlunarverkið Facets of identity eftir listakonuna Alina Kapatsyna frumsýnt í sal og streymi.
9:00 Setning
Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs
Aðgengi innflytjenda að fjármálaþjónustu á Íslandi
Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild HÍ, kynnir niðurstöðu rannsóknar um aðgengi innflytjenda að fjármálaþjónustu á Íslandi
Samfélagslegur kostnaður vegna fátæktar: Staða fólks af erlendum uppruna
Halldór Sigurður Guðmundsson, prófessor við félagsráðgjafardeild HÍ, og Kolbeinn H. Stefánsson, dósent, kynna niðurstöður rannsóknar um stöðu fólks af erlendum uppruna.
Mállíðan: Að kanna kynjaðan heilsumun í íslenskunámi
Logan Sigurðsson frá Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi segir frá verkefni sem gengur út á að styðja konur við að yfirvinna heilsufarsáskoranir á borð við streitu, kvíða og þunglyndi sem geta valdið hindrunum við að læra nýja hluti, einkum tungumál. Með þessu verða til hvetjandi aðstæður sem auka sjálfsvirðingu og sjálfstraust kvennanna.
Byggjum brýr
Katarzyna Agnieszka Rabeda, deildarstjóri íslenskubrautar í Kvennaskólanum í Reykjavík, kynnir verkefnið Byggjum brýr sem er ætlað að styðja við, valdefla og fræða ungmenni af erlendum og íslenskum uppruna um fjölmenningu, inngildingu, fordóma og samfélagsleg málefni.
Afhending styrkja úr Þróunarsjóði innflytjendamála 2025
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, afhendir styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
11:00 Fundarlok
Skráning á morgunverðarfund innflytjendaráðs: Innflytjendur og samfélagið

