Með nýjum launasjóði fær okkar fremsta afreksíþróttafólk í fyrsta sinn laun fyrir vinnu sína sem íþróttafólk. Launasjóðurinn er fjármagnaður af mennta- og barnamálaráðuneytinu og er hluti af tillögum starfshóps ráðuneytisins undir stjórn Vésteins Hafsteinssonar sem birtast í skýrslunni Áfram Ísland. Nýr launasjóður íþróttafólks var kynntur hjá ÍSÍ í gær ásamt nýjum launþegum.
Markmiðið er að gera afreksíþróttafólki kleift að setja íþrótt sína í forgang og einbeita sér að afreksíþróttastarfi með það að leiðarljósi að ná framúrskarandi árangri og komast í fremstu röð á alþjóðavettvangi.
Launasjóður íþróttafólks er á vegum Afreksmiðstöðvar Íslands. Ný Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) var formlega opnuð í maí sl. en hún gegnir lykilhlutverki í eflingu afreksíþróttastarfs hér á landi í fyrrgreindum tillögum starfshóps mennta- og barnamálaráðuneytisins að fyrirkomulagi afreksstarfs á sviði íþrótta hér á landi.
Fjöldi launþega eru 32 einstaklingar og 3 pör, samtals 38 íþróttamenn í fremstu röð – sjá nánar upplýsingar á vef ÍSÍ. Flestum er úthlutað til 12 mánaða, en mögulegum Ólympíuförum fyrir Vetrarólympíuleikana 2026 er úthlutað fram yfir leika.
„Það er ánægjulegt en einnig mikilvægt að innleiðing á nýju fyrirkomulagi afreksíþróttastarfs gengur samkvæmt áætlun. Stuðningur sem þessi á eftir að hafa víðtæk áhrif á íslenskt íþróttalíf til framtíðar og efla þá umgjörð sem nauðsynleg er að byggja upp utan um okkar afreksíþróttafólk,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.

