Sjö sakborningar voru sakfelldir í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fjárkúgun, rán og brot á barnaverndarlögum eða hlutdeild í þeim brotum. Í hópnum eru tveir menn um tvítugt, fæddir 2003 og 2005. Hinir sakborningarnir eru ungmenni.
Fjallað var fyrst um málið hjá Rúv og þar kemur fram að fullorðnu mennirnir sem voru dæmdir til fangelsisvistar fengu 18 mánaða dóm og hinn 15 mánaða og eru þrír mánuðir dómsins óskilorðsbundnir.
Fullorðnu mennirnir tveir eru báðir um tvítugt, fæddir 2003 og 2005 eru ákærðir fyrir að hafa peninga af börnum með hótunum í þremur málum í ágúst í fyrra. Í öll skipti voru fleiri aðilar með í glæpunum, frá einum upp í fimm. Þá segir jafnframt:
Höfðu fé af börnum
Þrír ákæruliðir af tíu sneru að brotum gegn barnaverndarlögum sem ýmist fólu í sér fjárkúgun eða rán. Fullorðnu mennirnir, í félagi við flesta þeirra yngri, umkringdu barn í strætisvagni í Hafnarfirði í ágúst 2024 og hótuðu að hleypa því ekki út nema það léti þá hafa pening. Barnið komst út eftir að það millifærði 11 þúsund krónur inn á reikning annars úr hópi eldri sakborninga.
Degi síðar réðust sex sakborninganna að þremur börnum og hótuðu þeim ofbeldi. Annar fullorðnu sakborninganna tók farsíma eins brotaþolans og millifærði 40 þúsund krónur inn á reikning ungmennis úr hópi sakborninganna. Peningarnir rötuðu svo á endanum á reikning fullorðna mannsins sem hótaði brotaþolunum þremur líkamsmeiðingum myndu þeir kjafta frá.
Eldri sakborningarnir hlutu dóm fyrir líkamsárásir og eignaspjöll
Síðar í ágúst 2024 ógnuðu fullorðnu mennirnir tveir, í félagi við einn úr hópi þeirra yngri, tveimur ungmennum með skóflu. Þeir tóku síma annars og millifærðu 62 þúsund krónur á bankareikning hins. Því næst fór einn ákærðu með annað ungmennið að hraðbönkum til að reyna að ná peningunum út, án árangurs.
Annar þeirra fullorðnu var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás og eignaspjöll. Hinn var sakfelldur fyrir þjófnað, fíkniefnalagabrot, brot gegn vopnalögum og eignaspjöll.
Fjórum brotaþolum voru dæmdar miskabætur á bilinu 600 til 640 þúsund sem sakborningarnir þurfa að greiða.

