Helstu atriði úr dagbók lögreglu frá klukkan 17 til fimm í morgun: Þegar þetta er ritað gista þrír aðilar í fangageymslu lögreglu. Alls eru 35 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1
- Tveir aðilar handteknir fyrir húsbrot í hverfi 102, þeir vistaðir í fangageymslu
- Tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 103, afgreitt á vettvangi
- Tilkynnt um árekstur og af stungu í hverfi 105, vitað hver var að verki, málið í rannsókn
- Tilkynnt um líkamsárás í hverfi 105, minniháttar meiðsli, afgreitt á vettvangi
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 2
- Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 221, engin meiðsli á fólki, afgreitt á vettvangi
- Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 220, engin meiðsli á fólki, afgreitt á vettvangi
- Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 220, við athugun kom í ljós að ökumaðurinn hafði ekki gild ökuréttindi, afgreitt með sekt
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 3
- Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 111 vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, lausir að lokinni blóðsýnatöku
- Almennt eftirlit og aðstoð
Lögreglustöð 4
- Ökumaður stöðvaður í akstri í hverfi 110 grunaður um akstur undir áhrifum áfengis, laus að lokinni blóðsýnatöku
- Ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur í hverfi 110, 122/80, skýrsla rituð á málið og má ökumaðurinn búast við sekt
- Almennt eftirlit og aðstoð
Umræða

