Halldór Blöndal er látinn. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt þriðjudags, 87 ára að aldri.
Halldór átti langan stjórnmálaferil og var fyrst kjörinn á Alþingi árið 1979 sem alþingismaður Sjálfstæðisflokksins frá Norðurlandi eystra og sat hann á Alþingi til ársins 2007.
Foreldrar Halldórs voru Kristjana Benediktsdóttir (1910-1955), systir Bjarna Benediktssonar fyrrverandi forsætisráðherra (1908-1970), og Lárus H. Blöndal bókavörður (1905-1999). Hann var einn fimm systkina.
Halldór fæddist í Reykjavík 24. ágúst árið 1938 og ólst upp á Laugavegi. Hann útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1959 og lagði nám í lögum og sagnfræði við Háskóla Íslands.
Hann kvæntist Renötu Brynju Kristjánsdóttur árið 1960. Þau áttu saman dæturnar Ragnhildi og Stellu en skildu síðan. Renata lést árið 1982. Árið 1969 kvæntist Halldór Kristrúnu Eymundsdóttur en saman eignuðust þau Pétur. Fyrir átti Kristrún Eymund Matthíasson Kjeld og Þóri Bjarka Matthíasson Kjeld. Kristrún lést árið 2018.

