• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Er líf karl­manns 75% af virði lífi konu?

Er líf karl­manns 75% af virði lífi konu?

Jón Pétur Zimsen skrifar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. desember 2025
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Á þingi er kynjajafnréttisáætlun til afgreiðslu. Það er sláandi að af 40 aðgerðum eru einungis tvær sem snúna beint að körlum, eða 5%.

Jón Pétur Zimsen skrifar

Í umsögnum um frumvarpið koma karlar fyrir sem samanburðarhópur eða sýndir sem ofbeldismenn.

Karlar sem standa höllum fæti í Íslensku samfélagi hafa verið afskiptir og staða þeirra í mætir afgangi.

Tölfræðin segir okkur t.d. að karlar:

  • Lendi ekkert síður í ofbeldi
  • Eru 75% þeirra sem taka sitt eigið líf og eru 88% af þeim deyja í umferðinni
  • Standi efnahagslega verr eftir skilnaði og umgengi við börn sín stundum skert
  • Eru mun oftar heimilislausir og eru meginþorri fanga
  • Eru verr læsir og eru 23% fleiri en stúlkur, sem ekki eru í skóla og án vinnu
  • Lifa 3-4 árum skemur en konur

Það skýtur því skökku við að ekki séu t.d. til sambærileg úrræði fyrir heimillausa karla og konur s.s. Konukot og Kvennaathvarf eins og margir t.a.m. lögreglan hefur ítrekað bent á.

Rannsóknir hérlendis benda til að drengir verði fyrir meira líkamlegu- og andlegu ofbeldi en stúlkur verði fyrir meira kynferðislegu ofbeldi og vanrækslu, fyrir 18 ára aldur. Þetta er þó alls ekki bara bundið við Ísland, þetta er alheimsvírus:

Fyrir stuttu var 303 þremur nemendum, stúlkum og drengjum, rænt í Nígeríu. Hátt settur embættismaður Sameinuðuþjóðanna (SÞ), Amina Mohammed, fordæmdi eðlilega verknaðinn en beindi bara sjónum sínum að stúlkunum.

Árið 2014 réðist Boko Haram inn í drengjaskóla og myrti 59 drengi. Sá atburður fékk litla sem enga umfjöllun. Mánuði síðar gerðis sá hörmulegi atburður að rúmlega 250 stúlkum var rænt af sama hópi manna. Sá atburður var í heimsfréttum og fréttum hérlendis mánuðum saman og Michelle Obama lét sig málið varða, sem var gott.

Konur eru stór meirihluti í valdastöðum hérlendis hvað kynjajafnrétti varðar

SÞ halda ágætis dag gegn ofbeldi kvenna, engin slíkur er fyrir karla

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) birtir skýrslu um ofbeldi gegn konum, ekki körlum.

Konur eru stór meirihluti í valdastöðum hérlendis hvað kynjajafnrétti varðar. Eftir að hafa fjallað um kynjajafnréttisáætlun ríkisins í allsherjar- og menntamálanefnd er mín tilfinning, eftir samtöl við fjölda kvenna en fáa karla sem komu fyrir nefndina, þessi:

Því miður skipti kyn máli hvað aðgerðir, fjármagn og áætlanagerð varðar. Jafnréttislög og erindisbréf mega sín lítils. Öll elskum við einhvern karlkyns og við getum ekki boðið drengjum og körlum upp á þessa stöðu. Hver veit hvenær þeir þurfa að styrkjandi hönd að halda einhvern tímann í lífinu?

Sem betur fer er staðan skárri hjá konum hvað úrræðin varðar en líf karla eiga ekki að hafa lægri verðmiða en líf kvenna.

Drögum fólk ekki í dilka eftir t.d. kyni, aldri eða efnahag. Við skiptum öll máli.

Jafn­réttis­brot ís­lenskra stjórn­valda

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?