Vinnuhópur forsætisráðherra um hagsýni í ríkisrekstri hefur skilað skýrslu um störf sín og framgang verkefna. Samkvæmt núgildandi fjármálaáætlun verður hagrætt í ríkisrekstri um 107 milljarða króna á tímabili áætlunarinnar frá 2026-2030 og þar af um ellefu milljarða króna á næsta ári.
Upphaf verkefnisins má rekja til víðtæks samráðs sem efnt var til í samráðsgátt í byrjun kjörtímabilsins undir yfirskriftinni Verum hagsýn í ríkisrekstri. Þar var leitað eftir hugmyndum um hagræðingu, einföldun og sameiningar frá almenningi, forstöðumönnum ríkisstofnana og ráðuneytum. Þátttaka reyndist afar góð og bárust hátt í fjögur þúsund umsagnir, sem er metfjöldi.
Í kjölfar samráðsins skipaði forsætisráðherra hagræðingarhóp utanaðkomandi sérfræðinga til að fara yfir innsendar ábendingar og móta tillögur um raunhæfar umbætur. Hópurinn skilaði tillögum sínum 4. mars 2025 og voru þær lagðar til grundvallar áframhaldandi vinnu stjórnvalda. Talið er að um helmingur tillagnanna verði að veruleika á gildistíma núverandi fjármálaáætlunar, gangi áform ráðuneyta eftir.
Til stuðnings og eftirfylgdar við þá vinnu var jafnframt skipaður sérstakur vinnuhópur með fulltrúum forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis. Hann starfaði við hlið hagræðingarhópsins og hélt áfram vinnu eftir að tillögurnar komu fram, meðal annars til að meta útfærslur og undirbúa framgang þeirra tillagna sem ákveðið yrði að vinna frekar.
Niðurstöður þeirrar vinnu birtast í skýrslu vinnuhópsins sem skilað var í lok nóvember. Þar er dregið saman hvaða tillögur verði unnar áfram og hvernig þær falla að markmiðum fjármálaáætlunar 2026–2030 um hóflegan vöxt útgjalda ríkissjóðs, eflingu fjárhagsstöðu og stöðugleika í efnahagslífinu. Áfram verður unnið að eftirfylgni umbóta- og hagræðingarverkefna undir forystu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

