• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Fimmta til­raun til að leyfa ráð­stöfun útvarpsgjalds til annarra fjöl­miðla

Ríkið greiðir sérstaklega fyrir réttar fréttir

Aðgerðaráætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
19. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Fréttatíminn sem hefur verið starfandi í um tvo áratugi og hefur aldrei þegið styrki frá ríkinu né einstökum aðilum. Enda algjörlega frjáls og óháður miðill. Nú hefur ríkisstjórnin kynnt breytingar sem valda miklum vonbrigðum vegna þess að sérstakur bónus er fyrir handvalda fjölmiðla og svo þá sem fjalla sérstaklega um Alþingiskosningar. Ekkert er gert til að örva óháða fjölmiðlun.

Ríkið ritstýrir fjölmiðlum eins og í kommúnistaríkjum

Með þessu er ríkið í raun að ritstýra fjölmiðlum og ákveða hvað skal birt gegn greiðslum. Flestir fjölmiðlar hafa kosið að fólk gæti sjálft ákveðið hvaða fjölmiðil það vildi styrkja á skattframtali en ríkisstjórnin er á móti slíku frelsi skv. aðgerðum sem voru birtar í dag. Tjáningarfrelsi og frjáls fjölmiðlun er fótum troðin!

Hvers vegna fá t.d. fjölmiðlar sem fjalla um ákveðnar kosningar hundruði milljóna fyrir slíkt? Það eru allskonar kosningar út um allt, um allt og ekkert í heiminum sem og á Íslandi en ríkið vill ritstýra og taka fram fyrir hendur frjálsra fjölmiðla með þessum hætti og minnir óneitanlega mikið á kommúniska stjórnun og ritskoðun. Flestir hefðu haldið að að sá tími væri liðinn.

Hér að neðan er svo kynning á því hvernig ríkið ætlar að stjórna fjölmiðlum á Íslandi:

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kynnti í dag aðgerðaáætlun stjórnvalda fyrir íslenska fjölmiðla. Aðgerðaáætlunin er afrakstur viðamikils samráð við fjölmiðla landsins, auglýsendur og framleiðendur. Hún telur um tuttugu aðgerðir og hvílir á þremur þáttum:

•           Fjölmiðar eru grunnstoð í samfélaginu

•           Alþjóðleg samkeppni grefur undan íslenskum fjölmiðlum

•           Nauðsynlegt er að horfa á íslenskt fjölmiðlaumhverfi sem eina heild

„Þessi aðgerðaáætlun er ekki samansafn einstakra aðgerða, enda mun engin ein aðgerð tryggja viðspyrnu íslenskra fjölmiðla í alþjóðlegri samkeppni. Þessi aðgerðaáætlun myndar eina heild þar sem margar ólíkar aðgerðir vinna saman í átt að sterkara fjölmiðlaumhverfi á Íslandi. Þegar litið er á einstaka aðgerðir er því mikilvægt að hafa í huga samspil þeirra við aðrar aðgerðir í áætluninni,“ segir Logi.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fól sérfræðingum ráðuneytisins í málefnum fjölmiðla að kanna allar þær leiðir sem styrkt gætu fjölmiðla á Íslandi, þar á meðal leiðir sem hafa áður komið til kasta Alþingis og leiðir sem hafa verið fyrirferðarmiklar í opinberri umræðu.

„Eftir að hafa velt öllum steinum er það okkar mat að leiðirnar sem við kynntum hér skili meiri árangri fyrir fjölmiðla landsins í alþjóðlegri samkeppni en aðrar útfærslur: þegar horft er á heildarmyndina og beinna áhrifa af samspili þessara aðgerða,“ segir Logi.

Aðgerðaáætlunina má nálgast hér neðst í fréttinni en aðgerðunum tuttugu er skipt í eftirfarandi flokka:

•           Staða Ríkisútvarpsins í fjölmiðlaumhverfinu

•           Fjölbreytt flóra einkarekinna fjölmiðla

•           Heilbrigðara samkeppnisumhverfi

•           Sterkari stétt

•           Aðrar aðgerðir

Hlekkur á aðgerðaáætlun

 

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?