Talsverður erill hefur verið hjá LRH. Hér er það helsta úr dagbók lögreglu frá klukkan 17:00 til klukkan 05:00. Þegar þetta er ritað gista átta í fangageymslu lögreglu. Alls eru 81 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Listinn er ekki tæmandi.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seltjarnarnes:
Sjö ökumenn stöðvaðir í akstri grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Allir nema einn lausir eftir hefðbundið ferli. Sá sem var vistaður í klefa hafði þá einnig átt þátt í umferðaróhappi.
Tilkynnt um æstan aðila í miðbænum. Sá framvísaði ekki skilríkum að kröfu lögreglu, fylgdi svo ekki þeim fyrirmælum sem honum voru gefin og var með fíkniefni í fórum sínum. Vistaður í fangaklefa.
Lögregla rannsakar þá líkamsárás þar sem margir veittust að einum í miðbæ Reykjavíkur. Tveir handteknir og vistaðir vegna málsins.
Aðili handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann hafði verið í stympingum við dyraverði í miðbænum. Á lögreglustöð var ákveðið að sleppa manninum þar sem engar kröfur voru á hann frá dyravörðum. Fékk hann að ganga heim á leið með þau fyrirmæli að fara ekki aftur í miðbæinn. Klukkustund síðar mætti hann aftur á lögreglustöðina og reyndi þá að komast inn í húsið frá athafnasvæði lögreglu. Maðurinn var þá handtekinn og vistaður vegna ástands en þá fundust á manninum meint fíkniefni.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps en þar barst lögreglu tilkynning um harðan árekstur. Þó virðist málið fara betur en á horfðist þar sem enginn virðist hafa slasast í óhappinu.
Lögregla kölluð til vegna þjófnaðar í verslun. Aðili handtekinn og vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
Ökumaður stöðvaður í akstri grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Tilkynnt um eld í íbúðarhúsnæði. Þarna hafði kviknað í einhverju í íbúðinni en málið er í rannsókn. Vel gekk að slökkva eldinn og 20 mínútum eftir að tilkynning barst var tilkynnt um að búið væri að slökkva eldinn.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
Fjórir ökumenn stöðvaðir í akstri grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Allir lausir eftir hefðbundið ferli.

