• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

55 milljóna starfslokasamningi hafnað og launum í fjögur ár

Sólveig Anna Jónsdóttir

Vinstrið er orðið að vók elítu

Þetta kom fram í samtali í hlaðvarpinu Bjórkastinu - MYNDBAND NEÐST

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

„Vinstrið yfirgaf mig – Bara shame on them“

Vinstrið orðið að elítu sem sýnir litla raunverulega umhyggju fyrir lífsskilyrðum verka- og láglaunafólks.
Sólveig Anna Jónsdóttir fer hörðum orðum um stöðu vinstrisins í dag og segir hreyfinguna hafa þróast í kreddubundna elítu sem hafi engan áhuga á raunveruleika verkafólks.

Þetta kom fram í samtali í hlaðvarpinu Bjórkastinu, þar sem Sólveig var gestur ásamt Frosta Logasyni.
Sólveig ræddi reynslu sína af hörðum viðbrögðum frá fólki eftir að hún gagnrýndi svokallað vók á Samstöðinni. Sólveig Anna lýsir því að hún hafi lengi trúað því að innan vinstrisins giltu málfrelsi og skoðanafrelsi, jafnvel þegar menn væru ósammála.

„Ég einhvern veginn hélt þá að við hefðum málfrelsi og ég hefði skoðanafrelsi og mætti tala,“ segir hún.
„Svo kom í ljós að fyrir hóp fólks sem ég þá á þeim punkti hefði talið einhvers konar félaga mína, var það ekki svo,“ segir hún og bætir við að viðbrögðin hafi komið henni sérstaklega á óvart vegna þess hverjir áttu í hlut. „Fólkið sem brást svona harkalega við var fólk sem ég hefði heilsað mjög kumpánlega úti á götu og tekið þátt í pólitísku starfi með. Þess vegna kom mér það svo rosalega á óvart hvað viðbrögðin voru ofboðslega brjálæðisleg.“

„Það er mjög skrítið,“ segir hún, en tekur fram að hún sé enn með hugmyndir sem flokkist til vinstri.
„Þessi trú á það að þú sért einhvern veginn bestur í að vera góður, mér finnst það frekar viðbjóðslegt“

„Ég hefði gert það fyrir einhverjum árum síðan, en á þessum tímapunkti er bara svo margt við þetta hefðbundna vinstri sem mér finnst ekki gott, sem mér finnst bara alveg ömurlegt.“
„Kreddufesta sem drepur lausnir“

Að mati Sólveigar Önnu er stærsti vandi vinstrisins í dag sú kreddufesta sem hún segir ráða ferðinni.
„Það sem mér finnst svona óþægilegt og oft á tíðum bara mjög heimskulegt er þessi kreddufesta sem gerir það að verkum að fólk á erfitt með að horfast í augu við hlutina eins og þeir eru og á erfitt með að hugsa kreatíft og finna lausnir,“ segir Sólveig.„Ef þú ert fastur í kreddum, þá ertu náttúrulega ekki lausnamiðuð. Þess vegna þoli ég þetta mjög illa.“

Sólveig Anna gagnrýnir einnig það sem hún kallar skinnhelgi og ímyndaða siðferðislega yfirburði innan vinstrisins. „Þessi trú á það að þú sért einhvern veginn bestur í að vera góður, mér finnst það frekar viðbjóðslegt. Við erum öll breysk, við erum öll mannleg og við erum ekki fullkomin. Að láta eins og þú sért það og setja sig á einhvern siðferðislegan stall og tala niður til annarra, mér finnst það mjög fráhrindandi.“

„Þegar þeim hentar verða þau köld og kaldhæðin gagnvart fólki sem þeim líkar ekki við. Það er algjört áhugaleysi á lífsskilyrðum verka- og láglaunafólks,“ segir hún.

„Þegar þau fá tækifæri til að gera eitthvað til að koma til móts við þessa hópa, þá gera þau það ekki, eða gera svo lítið að það skiptir engu máli.“
„Ég er ekki það sem þau kalla vinstri. Ég er allavega ekki það sem þau kalla að vera vinstri.“

„Vinstrið yfirgaf mig. Já. Bara shame on them.“

 

Umræða
Share4Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    56 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?