Alvarlegur árekstur tveggja bíla átti sér stað við Fagurhólsmýri á Suðurlandi í kvöld. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út á sjötta tímanum. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta við ríkisútvarpið sem birti fyrst fréttina.
Fjórir voru fluttir til aðhlynningar í Reykjavík, þrír með fyrri þyrlu gæslunnar og einn með þeirri seinni. Þyrlurnar lentu á Reykjavíkurflugvelli en ekki beint á Landspítalanum vegna skyggnis. Þeir sem voru slasaðir um borð voru síðan fluttir á spítala með sjúkrabílum.
Lokað var fyrir umferð á slysstað við Fagurhólsmýri á meðan vettvangsrannsókn stóð yfir en búið er að opna veginn aftur. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir tildrög slyssins til rannsóknar í viðtali við rúv.
Umræða

