• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Netsvindl, fjárkúgun og fleira

Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. desember 2025
in Fréttir, Innlent
A A
0

Helstu atriði úr dagbók LRH frá 17-05. Þegar þetta er ritað eru þrír vistaðir í fangageymslu lögreglu. Alls eru 74 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili.

Lögreglustöð 1

Kvartað undan víðáttuölvuðum manni í verslun í miðborginni. Honum ekið í skýli.

Tveir menn kærðir fyrir slagsmál í félagslegu búsetuúrræði.

Maður handtekinn grunaður um framleiðslu og söludreifingu fíkniefna. Hann jafnframt grunaður um brot á lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum. Vistaður í fangaklefa.

Ölvaðri konu vísað út af skemmtistað í miðborginni eftir að hafa notað gólfið þar inni sem salerni.

Eftirlit með bifreiðastöðum og voru fjölmargir ökumenn sektaðir fyrir að leggja á gangstéttum, en þar eiga bifreiðar ekki heima.

Ölvaðri konu vísað út úr spilasal.

Maður handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Laus að sýnatöku lokinni.

Maður handtekinn grunaður um ölvunar-, fíkniefna- og sviptingarakstur. Laus að sýnatöku lokinni.

Maður handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu. Vistaður í fangaklefa.

Lögreglustöð 2

Maður handtekinn grunaður um fíkniefna- og sviptingarakstur. Laus að sýnatöku lokinni.

Þjófnaður í matvöruverslun.

Ýmsar tilkynningar um ungmenni með flugelda. Leyst með aðkomu forráðamanna.

Erlendur maður handtekinn grunaður um brot á lögum um atvinnuréttindi útlendinga, brot á reglum um aukin ökuréttindi, fyrir að aka án rekstrarleyfis, dvöl án dvalarleyfis og að nýta starfskrafta útlendings sem hefur ekki tilskilið leyfi.

Lögreglustöð 3

Maður handtekinn grunaður um ölvunarakstur. Laus að sýnatöku lokinni.

Maður handtekinn grunaður um ölvunar- og sviptingarakstur. Laus að sýnatöku lokinni.

Kona kærð fyrir að aka svipt ökurétti.

Maður kærður fyrir að aka án gildra réttinda.

Maður kærður fyrir akstur gegn rauðu ljósi.

Maður handtekinn grunaður um ölvunar- og fíkniefnaakstur. Hann reyndi að komast undan og sinnti ekki þeim stöðvunarmerkjum sem honum voru gefin en hafði þó ekki erindi sem erfiði. Hann er grunaður um fjölmörg umferðarlagabrot, t.d. of hraðan akstur 117/50, svigakstur og vanrækslu á merkjagjöf. Hann var fluttur á lögreglustöð í þágu rannsóknar málsins hvar hann sætti blóðsýnatöku og bráðabirgðasviptingu ökuréttar.

Lögreglustöð 4

Ýmsar aðstoðarbeiðnir vegna veikinda, samkvæmishávaða og grunsamlegra mannaferða.

Umræða
Share9Tweet6
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Staða biðlista á leikskóla

    Grunur um brot gegn barni á leikskóla í Garðabæ og í fleiri leikskólum

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Djúp og kröpp lægð og önnur á leiðinni

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Verð á eldsneyti lækkar

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Lágt verð á krónu er stærsta kjaraskerðingin

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Veðurviðvörun á Tenerife, stormur og snjór – vinsælum ferðamannastað lokað

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?