Þrír voru handteknir á Akureyri í nótt eftir alvarlega líkamsárás í bænum
Tveir hinna handteknu reyndust vera með alvarlega áverka og voru þeir fluttir til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri. Í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra segir að hnífi hafi verið beitt.
Annar var með tvo stunguáverka og hinn með umtalsverða áverka í andliti. Að læknisskoðun lokinni voru aðilar fluttir í fangageymslur lögreglu.
Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra og að sögn lögreglu er rannsókn málsins á frumstigi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort farið verði fram á gæsluvarðhald.
Umræða

