• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Brot 721 ökumanna mynduð

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra

Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni styrktar til tækjakaupa

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að úthluta heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni samtals 77 milljónum króna til endurnýjunar á tækjabúnaði. Ráðstöfun fjárins byggist á forgangsröðun í samræmi við brýnustu þarfir stofnananna. Víða er uppsöfnuð innviðaskuld sem mikilvægt er að mæta til að efla viðbragðsgetu stofnananna, tryggja gæði þjónustu og öryggi sjúklinga, bæta greiningar- og meðferðargetu og stuðla að hagkvæmari rekstri. 

Varaflstöðvar fyrir 32 milljónir króna

Af þeim 77 milljónum króna sem nú er úthlutað renna 32 milljónir króna til kaupa á varaflsstöðvum sem eru mikilvæg forsenda fyrir órofinni og öruggri heilbrigðisþjónustu ef rafmagn bregst, t.d. í óveðrum eða af öðrum ástæðum. Brýn þörf fyrir úrbætur hvað þetta varðar kom glöggt í ljós þegar fárviðri gekk yfir landið í desember 2019 og olli víða erfiðleikum á heilbrigðisstofnunum þar sem varaafl var ótryggt eða ekki fyrir hendi. Heilbrigðisstofnun Norðurlands fær fjármagn til kaupa á varaaflsstöðvum við starfsstöðvar á Húsavík, Sauðárkróki, Blönduósi og Siglufirði og Heilbrigðisstofnun Suðurlands til kaupa á varaaflsstöð í Vestmannaeyjum.

Af því fjármagni sem er til úthlutunar eru einnig veittir styrkir til kaupa á hjartastuðtækjum, ómtækjum, mónitorum, bráðabúnaði fyrir heilsugæslu og flutningskassa fyrir nýbura.

Fjármagn til tækjakaupanna kemur af safnlið almennrar sjúkrahúsþjónustu sem ráðherra er heimilt að ráðstafa til tilgreindra verkefna. Á þessu ári hefur þegar verið veittur rúmlega 140 m.kr. styrkur af safnliðnum til kaupa á tölvusneiðmyndatæki til Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    51 deilingar
    Share 20 Tweet 13
  • Alþingismanni hótað

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?