• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

TINNU-verkefnið fær 25 milljóna króna styrk: Ríflega 180 konur og börn þátttakendur árið 2025

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri.

TINNU-verkefnið fær 25 milljóna króna styrk: Ríflega 180 konur og börn þátttakendur árið 2025

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. janúar 2026
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri, hafa undirritað samning að upphæð 25 m.kr. vegna TINNU-verkefnisins sem miðar sérstaklega að einstæðum foreldrum sem eru utan vinnumarkaðar og hafa átt í langvarandi félagslegum vanda.

Styrkurinn felur í sér áframhaldandi stuðning ráðuneytisins við þróun verkefnisins hjá Reykjavíkurborg, með sérstakri áherslu á að þjónusta einstaklinga sem eru á örorku- eða endurhæfingarlífeyri. Markmiðið er að styðja þá til virkni og hvetja til þátttöku á vinnumarkaði á ný. Á árinu 2025 voru 65 þátttakendur í TINNU með samtals 116 börn.

Markmiðið með TINNU er að efla og styrkja foreldra í uppeldishlutverki sínu auk þess að stuðla að bættum lífsgæðum fjölskyldunnar. Áhersla er á sjálfsstyrkingu, aukna félagslega færni og almenna virkni og þátttöku í samfélaginu, þar með talið á vinnumarkaði.

„TINNA er mikilvægt úrræði fyrir ákveðinn hóp foreldra og barna þeirra sem margir hafa ekki annað að leita til og það er dýrmætt að geta stutt við þetta mikilvæga verkefni. Það er til mikils að vinna ef við náum að rjúfa vítahring fátæktar og auka líkur á að börnum þeirra foreldra sem taka þátt í TINNU vegni betur í framtíðinni,” segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„TINNA er verkefni sem getur skipt sköpum í lífi fólks. Við erum að koma til hjálpar, styðja við og valdefla einstaklinga og fjölskyldur í erfiðri stöðu. Þetta hefur gríðarlega jákvæð áhrif á möguleika þeirra, bæði fullorðinna og ekki síst barna þeirra, til að bæta sín lífsgæði og verða þátttakendur í samfélaginu,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri.

„TINNU verkefnið hefur skilað góðum árangri en í þjónustukönnun sem gerð var í desember sl. kom fram að 92% þátttakenda treysta starfsfólki TINNU, 92% þátttakenda eru ánægð með ráðgjöfina í TINNU, 88% þátttakenda líður vel eða frekar vel í TINNU, 87% töldu að stuðningur og aðgengi að starfsfólki hefði nýst þeim mjög vel eða frekar vel, 84% eru ánægð eða frekar ánægð með námskeið og fræðslu sem þeim stendur til boða í TINNU og 79% eru ánægð eða frekar ánægð með stuðning vegna barna,“ segir Þuríður Sigurðardóttir, verkefnastjóri TINNU.

Þuríður segir að í könnuninni hafi þátttakendur jafnframt komið á framfæri þakklæti fyrir úrræðið og tekið fram að það hafi nýst þeim og börnum þeirra stórkostlega.

Hópastarf, fræðsla og dagskrá fyrir börn

TINNU-verkefnið hefur um árabil verið starfrækt á vegum Reykjavíkurborgar með stuðningi ráðuneytisins. Unnið er á grundvelli einstaklingsáætlunar og samanstendur dagskráin af hópastarfi og fræðslu. Auk þess er boðið upp á dagskrá fyrir börn í skólaleyfum, sem og sérstaka sumardagskrá. Einstaklingsviðtöl og önnur þjónusta eru jafnframt í boði eftir þörfum.

Þá hafa TINNA og EAPN, samtök fólks í fátækt, átt með sér samstarf síðastliðin ár sem hefur falið í sér að þátttakendur í TINNU starfa sem sjálfboðaliðar hjá EAPN, meðal annars til að efla vinnufærni og rjúfa félagslega einangrun. Eins hefur foreldrum og börnum verið boðið upp á sumarvirkni í skólaleyfum barna foreldrum að kostnaðarlausu.

TINNA er hluti af Virknihúsi hjá Reykjavíkurborg.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    47 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Alþingismanni hótað

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Hver leyfði aðgangsgjald að náttúruperlum?

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Núverandi borgarstjóri tók þátt í skipulögðum árásum á feður“

    53 deilingar
    Share 21 Tweet 13
  • ,,Á pappír var fiskurinn í góðu lagi – ólöglegt að selja hann og hættulegt að borða“

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?