Margrét Friðriksdóttir stendur við ásakanir sínar í garð Barböru Björnsdóttur um misnotkun dómsvalds og lauslæti til að komast áfram í starfi. Barbara rekur ásakanirnar til „rógsbréfs“ sem hún segir Sigríði Hjaltested meðdómanda sinn hafa ritað.
Réttarhöld yfir Margréti Friðriksdóttur fyrir ærumeiðingar og rógburð tóku óvænta stefnu þegar Barbara Björnsdóttir héraðsdómari tengdi ásakanir Margrétar í sinn garð við einelti sem hún sagðist hafa sætt áratugum saman. Hilmar Garðars Þorsteinsson á lögmannsstofunni Málsvara er skipaður verjandi Margrétar Friðriksdóttur. Ríkisútvarpið fjallaði ítarlega um málið og þar segir;
,,Barbara sagði Sigríði Hjaltested, dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, hafa lagt sig í einelti frá 2003. Þær hafa verið samstarfskonur í dómstólnum frá 2013. Barbara sagði Sigríði hafa skrifað rógbréf um sig. Hún sagði að Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og eiginmaður Sigríðar, hefði deilt því með verjanda Margrétar. Áður hafði bréfið verið sent nafnlaust á dómstólasýsluna.
Ákærð fyrir ásakanir um hjúskaparbrot og misnotkun dómsvalds
Margrét sakaði Barböru meðal annars um hjúskaparbrot og ástarsamband við Símon Sigvaldason, sem var um skeið dómstjóri í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Barbara sagði það rangt að hún hefði átt í sambandi við Símon og sagði spurningu þess efnis óviðeigandi. Símon sagðist ekki svara spurningum um hvort hann hefði átt í sambandi við aðrar konur en eiginkonu sína.
Margrét var ákærð fyrir orð sem hún lét falla um Barböru Björnsdóttur eftir að hafa hlotið dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líflátshótanir sem síðar var snúið í Landsrétti. Margrét sakaði Barböru um fölsun vitnisburða, lauslæti og misnotkun dómsvalds.
Barbara kærði ummælin til lögreglu sem gaf út ákæru fyrir ærumeiðingar og aðdróttanir.
Sagði réttarmorð framið á sér
Margrét gaf fyrstu skýrslu sem sakborningur. Hún sagðist hafa orðið fyrir sínu mesta áfalli í lífinu þegar Barbara hefði framið á sér réttarmorð og dæmt sig ranglega þrátt fyrir vitnisburði um sakleysi sitt. Margrét sagði dómarann hafa logið upp á vitni og búið til lygasögu í dómsorði.
Margrét sagði að fyrrverandi lögreglumaður hefði verið tjáð sér fyrir dómsuppsögu að hún yrði sakfelld en kvaðst ekki hafa trúað því að ákveðið hafi verið að dæma sig. Hún sagðist hafa upplifað algjöra valdníðslu við dómsuppkvaðninguna og hafa misst alla trú á íslenskt réttarríki og heiðarleika. Hún upplýsti ekki hver þessi fyrrverandi lögreglumaður er. Margrét kvaðst vera blaðamaður og vernda heimildarmenn sína.
Margrét sagðist hafa reiðst dóminum og kvað Barböru vanhæfa sem dómara. Hún sagði fyrir dómi í dag að hún stæði við öll þau ummæli sem hún skrifaði um Barböru á Facebook-síðu sinni eftir dóminn.
Taldi mig ekki vera að móðga hana svakalega
Margrét hélt því meðal annars fram í færslu sinni að dómarinn hefði selt blíðu sína til að komast í stöðu dómara. Fyrir dómara sagðist hún hafa mismælt sig eða að þetta hefði verið misritun í sjálfkrafa leiðréttingu tölvukerfis. Þetta hefði hún leiðrétt í lögregluskýrslu og sagt að hún ætti við stöðu varadómstjóra.
Dómari leiðrétti fullyrðingu Margrétar um að hefð væri fyrir því að reyndasti dómari væri skipaður varadómstjóri og sagði henni að þeir væru kosnir en ekki tekið tillit til starfsaldurs.
„Ég taldi mig ekki vera að móðga hana neitt svakalega,“ sagði Margrét um ummæli sín um Barböru.
Hún sagði að ekki væri hægt að treysta réttarríkinu þegar hægt væri að panta niðurstöðu dómara en gat ekki svarað spurningu dómara um hver ætti að hafa pantað hana.
„Þetta var augljóslega svona vók-dómur.“

