Hér er það helsta úr dagbók lögreglu klukkan 05:00 – 17:00. Þegar þetta er ritað eru tveir vistaðir í fangaklefa. Alls eru 247 mál bókuð í kerfum lögreglu á tímabilinu. Ásamt neðangreindu sinnti lögregla almennu eftirliti og ýmsum aðstoðarbeiðnum. Listinn er því ekki tæmandi.
- Lögreglustöð 1
Ökumaður bifreiðar sektaður fyrir að aka sviptur réttindum sínum.
Tilkynnt um nytjastuldur á bifreiða. Bifreiðin fannst í hverfi 107 og var einn aðili handtekinn grunaður um verknaðinn. Aðilinn fluttur á lögreglustöð og var laus eftir skýrslutöku.
Maður bitinn af hundi í hverfi 101. Lögregla sinnti.
Tilkynnt um vinnuslys í hverfi 104. Aðili slasaður á fæti eftir fall. Fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar.
- Lögreglustöð 2
Innbrot á iðnaðarsvæði í hverfi 221. Búið var stela þaðan miklu magni af verkfærum. Lögregla sinnti og málið í rannsókn.
Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 210. Einn slasaður og var hann fluttur á slysadeild til frekari aðhlynningar. Ein bifreið óökufær.
Tveir aðilar handteknir eftir að í ljós kom að þeir voru í ólöglegri dvöl hér á landi. Handteknir og vistaðir í fangaklefa.
- Lögreglustöð 3
Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 109. Þarna hafði bifreið verið ekið aftan á aðra bifreið. Enginn slasaður en annar ökumaðurinn reyndist ekki vera með gild ökuréttindi.
- Lögreglustöð 4
Skráningarmerki tekin af átta ökutækjum.
Umferðarslys í hverfi 113. Ökumaður hafði misst stjórn á bifreið sinni vegna hálku og ók í veg fyrir aðra bifreið. Engin slys á fólki en tvær bifreiðar óökufærar.

