Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga sex ára stúlku og eiginkonu sinni. Samkvæmt ákærunni nauðgaði maðurinn stúlkunni tvisvar þegar hún var gestkomandi á heimili hans. Eiginkonu sinni er hann ákærður fyrir að nauðga sex til átta sinnum á fimm ára tímabili.
Fjallað er um málið á vef ríkisútvarpsins og þar segir að ,,maðurinn sé líka ákærður fyrir kynferðislega áreitni og kynferðisbrot gegn þeim báðum og að auki fyrir stórfellt brot í sambandi gegn konunni fyrir að hafa tekið myndir af því þegar hann braut á þeim. Þær myndir birti hann síðar á netinu að því er fram kemur í ákæru. Myndirnar af stúlkunni flokkast sem framleiðsla og dreifing á barnaníðsefni.
Í ákæru segir að maðurinn hafi nýtt sér yfirburði sína og aldursmun gagnvart stúlkunni og nýtt sér að hún var sofandi. Því hefði hún hvorki getað spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs síns. Hann er ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlkunni með því að hafa haft við hana önnur kynferðismök en samræði.
Maðurinn er sagður hafa notfært sér að eiginkona hans svæfi og brotið gegn henni þegar hún gat ekki spornað við verknaðinum vegna svefndrunga og/eða áhrifa áfengis.“

