Við lifum á öld rökleysunnar, þar sem rökhyggju, sannleiksleit, gagnrýninni hugsun og heilbrigðum efa hefur verið skipt út fyrir kreddur svo sem þær að menn geti breytt veðurfari ef þeir bara borga hærri skatta og að kynin séu fleiri en tvö, líklegast nær 40.

Kreddunum ber að fylgja hugsunarlaust, í blindni og af heitu offorsi. „Rökin“ eru þau að kreddurnar tákni bræðralag mannkyns, góðvild, framfarir, skynsemi og menntun. Hver sem er á móti kreddunum hlýtur því að vera á móti öllu því sem gott er. Síðarnefndi hópurinn hefur því ekki bara rangt fyrir sér, heldur er þetta fólk sem ekki þarf að ræða við og má „slaufa“, þagga niður í og fjarlægja úr hinu opinbera rými.
Þetta er lýsing Melanie Phillips, fyrrum pistlahöfundar í Guardian, á því sem hún kallar „öld rökleysunnar“ og „menningarlegt alræði“ þar sem stigið er ofan á frelsi einstaklingsins, málfrelsið og rökhhyggju … í nafni rökhyggju!
Við lifum nú í samfélagi þar sem gert er ráð fyrir að allir hugsi eins. Við höfum „rétt til að vera við sjálf“ bara svo framarlega sem við erum það undir regnbogafána – en helst ekki undir íslenska þjóðfánanum.
Þessi hugsunarháttur hefur leitt íslenskt þjóðfélag á glapstigu undir „forystu“ „menningarvita“ þessarar röklausu, guðlausu, kreddufullu nútíma-ómenningar. Afleiðingarnar birtast m.a. í því að á löggjafarþingi Íslendinga er enginn raunverulegur hægri flokkur og að við erum hér enn með Ríkisútvarp og nú með ríkisrekna stjórnmálaflokka og rithöfunda (og listamenn) sem eru á ríkislaunum og háskólaprófessora í ríkisháskólum – og allt syngur þetta fólk einn og saman sönginn.
En, kæri lesandi, þú sem hefur kosið að þegja og læðast með veggjum síðastliðin ár, og spila með og jánka blíðlega þegar þú heyrir hverja vitleysuna á fætur annarri, það er að kvarnast úr þessu og nú hefur þú val um að vera maður en ekki mús og taka þátt í að leiða þjóðina út úr þessum ógöngum og inn í heim heilbrigðrar skynsemi að nýju.
P.S. Ef menn vilja sjá hversu lítil fyrirstaðan er og hversu auðvelt er að afhjúpa jafnvel „lærðustu“ kreddu-predikarana, þá er t.d. hressandi að rifja upp þegar Sólveig Anna Jónsdóttir vann það þakkarverða starf að flengja Hallgrím Helgason á beran bossann á Samstöðinni.
Spurning okkar tíma: Hví kýs heilvita fólk vanvita til valda?
Í viðtalsþættinum Bjórkastið, sem sendur var út í beinni útsendingu í gærkvöldi, sagði ég m.a. að ég væri kominn að þeirri niðurstöðu að Íslandi væri stjórnað af vanvitum. Daglegur fréttaflutningur rennir beint og óbeint stoðum undir að þessi tilgáta eigi við rök að styðjast. Í ítarlegu og rúmlega 3ja klst samtali mínu við þáttastjórnendur var komið víða við og leitast við að greina stöðuna sem við blasir í samfélagsmálum, trúmálum og pólitík.
Rætt var um stofnanir samfélagsins og auðsjáanlega veikleika þeirra. Rætt var um stöðu Íslands og utanríkismálin. Rætt var um það hvernig stjórnmálaflokkarnir hafa umbreyst í ríkisstofnanir og hvað sé mögulega hægt að gera til að endurreisa íslenskt lýðræði. Einnig var rætt um kóvid19 og hvernig hjarðhegðun leysti yfirvegun og skynsemi af hólmi. Sjá hlekk

