Sett hafa verið í samráð drög að frumvarpi um stofnun sérstaks innviðafélags sem ætlað er að annast fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja. Stofnun innviðafélags styður við áherslur stjórnvalda um að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum og skapa skýrari umgjörð um framkvæmd stórra, þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna.
Gert er ráð fyrir að félagið haldi utan um fjármögnun og framkvæmd verkefna á borð við jarðgangagerð og aðrar viðamiklar samgönguframkvæmdir, í samræmi við samgönguáætlun. Miðað er við að innviðaráðherra muni, með heimild í áformuðum lögum, gera samninga við félagið um uppbyggingu og rekstur einstakra verkefna.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
„Með frumvarpinu er lagður grunnur að skýrara og skilvirkara fyrirkomulagi við fjármögnun stórra samgönguverkefna, sem getur skilað verulegum ávinningi fyrir samfélagið til lengri tíma.“
Samkvæmt frumvarpinu verður félagið í eigu ríkissjóðs og starfar á faglegum og viðskiptalegum grunni. Fjármögnun verkefna mun meðal annars byggjast á tekjum, svo sem veggjöldum, eða eftir atvikum framlögum frá ríkinu, með það að markmiði að tryggja fjárhagslega sjálfbærni.
- Hægt er að senda umsagnir um drögin í samráðsgátt til 9. febrúar.
- Upplýsingar um málið í samráðsgátt stjórnvalda.

