Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði í pontu Alþingis í dag minnihlutann ekki hafa nein önnur úrræði en að halda áfram umræðum um útlendingafrumvarpið verði frumvarp um grásleppuveiðar enn á dagskrá í dag. Svo virðist sem málþóf sé enn í gangi klukkan 17.00
Þjóðinni er í fersku minni málþóf vegna sérhagsmuna sem snéru að réttlátum veiðigjöldum, þar sem slegið var Íslansmet í málþófi sem kostaði skattgreiðendur um hálfan milljarð króna.
Ítarlega ef fjallað um málið á Vísi í dag undir fyrirsögninni; ,,Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar“
,,Jón Gunnarsson steig upp í pontu í umræðum um fundarstjórn forseta þegar þingfundur hófst klukkan 13:00. Þar ræddi hann málið sem er á dagskrá þingsins í dag, á eftir umræðu um útlendingalög.
„Ég hef farið yfir það hér í morgun og fleiri reyndar yfir athugasemdir okkar við það að svokallað grásleppufrumvarp skuli vera á dagskrá í dag. Það er margt að í vinnslu þess máls og hér er mikilvægt mál fyrir marga aðila, það eru nokkrir grásleppusjómenn þegar farnir á sjó á grundvelli þeirra laga sem unnið er eftir núna, aðrir eru að gera sig klára að fara á sjó eftir helgina,“ sagði Jón.
Hann er vel tengdur inn í samfélag grásleppusjómanna en tengdasonur hans rekur grásleppuútgerð á Siglufirði, að því er fram kom í umfjöllun Heimildarinnar á sínum tíma. Jón segir á þingi nú að víða sé beðið eftir þessum mögulegu breytingum á kerfinu.
„Það er því víða sem er beðið eftir þessu og ég vil fagna því að það sé eitthvert samtal í gangi núna milli þingflokksformanna um þetta mál og þá væntanlega í framhaldi fundur með þingforseta til að skoða þá beiðni okkar og óskir, til að halda hér friðinn í þessum þingsal, að þá verði þetta mál kallað til baka, það er að segja ekki haft á dagskrá þingsins í dag,“ segir Jón.“ Lesa má fréttina í heild sinni inn á vefnum Visir.is
Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

