• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Strandveiðimenn boða samstöðufund með ríkisstjórninni

Reyna að sverta Flokk fólksins

,,Flokkur fólksins er svo sannarlega að vinna að réttlæti fyrir þjóðina"

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
3. febrúar 2026
in Aðsent & greinar, Fréttir, Innlent
A A
0

Ekki fer honum Bergþóri Ólafssyni vel að reyna að sverta Flokk fólksins. Við strandveiði fjölskyldur erum varla búin að gleyma andstöðu við okkar kröfum í mótmælum af hans hendi og Miðflokki

Hugsið ykkur, Miðflokkurinn ræðst gegn umhverfisvænni veiðarfærum og skaðleysi á fiskistofnum þjóðarinnar. Á sama tíma mærir Miðflokkurinn mjólkurkýr sínar sem hafa dregið fiskistofna þjóðarinnar niður um helming með ónýtu tilraunakerfi, sem kvótakerfið hefur sannað síðustu áratugina. Svona fólk ræðst gegn réttlæti strandveiði fjölskyldna sem mega einungis nýta atvinnutæki sín í allt að 48 daga á ári, 14 klukkutíma á sólahring.

Og á sama tíma kalla svona aðilar strandveiðai fjölskyldur hobby-ista. Væru þessar fjölskyldur í annarri vinnu ef þeim byðist að nýta atvinnutæki sín meirihluta úr árinu? Nei sennilega ekki, enda bindur þetta fólk svo sterka trú um réttlæti fyrir sig og komandi kynslóðir um sanngjarnt umhverfisvænnt kerfi sem upphefur slíkar veiðar sem strandveiðar eru. Og krafa þeirra er látlaus, aðeins 48 daga úr árinu og 774 kg. á hvern veiðidag.

Strandveiðarfólkið hefur fjárfest og þarf því afkomu til að tryggja sitt öryggi með uppfærslu á búnaði og getað endurnýjað sig og því væri sanngjarnt að gefa strandveiðum þessa 48 daga og 774 kg á veiðidag. Hver er áhættan og hvaða skaði hlýst af ef einhver vill svara því fyrir mig á mannamáli?

Ekki að ekki séu nægar heimildir til en ég veit vel að fiskurinn er í sjónum en ekki á exel-skjali. Enda flest sem kemur þar á blað hlaupið saman um 50%. Hver er skaðsemi frjálsari strandveiða og hver er ávinningur þeirra?

Kvótakerfið, á það rétt á sér ef reyndin er samdráttur um helming á 40 árum?

Magnús Guðbergsson, vistvænn strandveiðimaður skrifar

Ef fram horfir er samdráttur næstu árin og hvað verður eftir af auðlind landsmanna eftir næstu 40 árin. Hver er í eiginhagsmunagæslu?

Auðvitað á að afnema svona kerfi sem virkar öfugt við að byggja upp undirstöðu atvinnuveg landsmanna. Èg sagði einfaldlega að ekki mætti láta ganga á þá sem hafa fjárfest í greininni til strandveiða Með fjölgun báta inn í kerfið sem myndi éta kerfið stöðugt innan frá. Jafnframt sagði ég að það þyrfti að binda frelsi strandveiða í lög á hvern bát í 48 daga að lágmarki og 774 kg á hvern veiðidag að hámarki óslægðum þorski.

Hvað gerðu þessir flokkar fyrir strandveiðar þegar þeir höfðu tækifæri til þess?

Flokkur fólksins er svo sannarlega að vinna að réttlæti fyrir þjóðina alla og ekki má gleyma að flokkarnir eru þrír í ríkisstjórn. Hafa hinir flokkarnir komið fram og sýnt okkur á spilin og að þeir séu samstíga í raun við það sem þeir samþykktu og skrifuðu undir í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar? Stjórnarandstaða hefur í öll þessi ár haft möguleika á að tryggja landsmönnum öllum svona strandveiðarkerfi með öryggi fyrir rekstur þessara fjölskyldna.

En áhugi þeirra var enginn eða var þeim hreinlega bannað að gera nýliðun inn í greinina. Eitthvað var í fyrirstöðu þeirra sem þá höfðu tækifæri en kusu að líta framhjá 1000 atkvæðum auk margfeldisáhrifa, fyrir einfalt réttlæti að auðlind þjóðarinnar fyrir landsmenn alla. Núna koma þeir eins og dýrlingar og ætla að krækja í atkvæði Strandveiðarfólks og landsbyggðar með því að væna eina flokkinn um svik við umbjóðendur sína.

Hvað gerðu þessir flokkar fyrir strandveiðar þegar þeir höfðu tækifæri til þess? Ekkert. Já einmitt ekkert er svarið.

En Flokkur fólksins er í ríkisstjórn og er svo sannarlega strax farinn að leita leiða í að geta staðið við skuldbindingar sínar í stjórnarsáttmála sem þeir lofuðu umbjóðendum sínum í síðustu kosningum.

Hvar sjáið þið þann kraft fyrir okkur frá siðustu ríkisstjórnum? Hvergi! og aldrei stóð til að gefa strandveiðum tækifæri til að verða hluti af undurstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar. Einokun með auðlind landsmanna er vel á veg komin og strandveiðar eru í raun fyrir innanbúðar verðlagningu hjá stórútgerðinni. Og þess vegna væri best fyrir þá að strandveiðar yrðu hreinlega lagðar af svo hægt væri að lækka skiptaverð til ahafna stórútgerðar.

Auðvitað verðum við ekki sammála um þetta en ég skrifa til þess að draga fram skoðanir hvers og eins sem getur gefið stjórnvöldum þá hugmynd um betri yfirsýn um hvernig hægt er að laga og tryggja fólkinu sem fjárfest hefur í atvinnugreininni betri rekstrargrundvöll með sín fyrirtæki. Þetta eru 800 smáfyrirtæki sem reiða sig á rekstrargrundvöll fyrir sínar fjölskyldur og afkomu til að tryggja öryggisbúnað ár hvert.

Hvaða atvinnugrein í landinu eru settar slíkar skorður 48 dagar fyrir smíði pipara lögfræðinga alþingis fólk ráðherra og rafvija og svo framvegis. Þetta er ekki eðlileg valdníðsla á atvinnugrein sem aldrei getur skaðað hvorki fiskistofna né lífríki sjávar og á engan þátt í samdrætti veiða milli ára í áratugi með ónýtu fiskveiðikerfi okkar sem var upphaflega tilraun til að byggja upp fiskistofna okkar að nýju. Ég ætla bara að halda mig við að vera áfram kurteis og málefnalegur. En ég virði þína skoðun á minni hagsmunagæslu. Auðvitað berjumst við fyrir tilverurétt okkar en ekki hvað.

Hvers vegna er einhver á móti umhverfisvænni veiðarfærum?

Eru það strandveiðar sem valda því að hér er aðeins hægt að veiða helmingi minna eftir áratuga notkun á tilrauna fiskveiðikerfi sem átti samt að byggja upp fiskistofna okkar að nýju.

Nú eru liðin 40 ár og enginn árangur ennþá af tilrauninni en samt heldur hún áfram. Já hvar annarstaðar er haldið áfram með ónýta tilraun? Eru 32 dagar strandveiða sem ættu í raun að vera 48 dagar á ári, eins og löggjöf gefur til kynna, að valda því að tilraunakerfið sem átti að byggja upp fiskistofna okkar að nýju? Hæpið!!

Eru fyrrverandi ríkisstjórnir á mála hjá útgerðum sem hafa yfirráð yfir nær öllum fiskistofnum þjóðarinnar. Auðvitað er fiskveiðikerfi okkar sjálfsmark sem erfitt verður að vinna leikinn út af. Fiskveiðikerfi okkar er í raun hagstjónartæki og veldur því í raun hærri vöxtum og verðbólgu.

Fiskveiðikerfi okkar var aldrei fiskverndunarkerfi til að byggja upp fiskistofna okkar að nýju. Það var bara yfirvarp fárra um yfirráð á auðlindum þjóðarinnar, svokallaða sameign þjóðarinnar sem er í raun sameign fárra fjölskyldna sem vilja ekki hleypa neinum inn í greinina. Kefi sem verndar handhafa rétt til nýtingar á auðlindinni en ekki fiskinn í sjónum. Ef raunverulega væri verið að vernda fiskinn, þá yrðu vistvæn veiðarfæri fyrir valinu, ekki veiðarfæri sem valda stórkostlegu tjóni á fiskistofnum og hafsbotninum samkvæmt rannsóknum sem voru ekki til fyrir fjörutíu árum.

Ónýtar hafrannsóknir í ónýtu kerfi til 40ára

Hvernig er hægt að treysta mælingum sem taka engum breytingum í átt að breyttum aðstæðum í lífríki sjávar og gengd fiskistofna í hafinu. Kannski má laga vexti og verðbólgu með leiðréttingu á útgefnum heimildum sem eru reiknaðar á gamalli reiknireglu ásamt veiðarfærum sem er í raun úr allri tengingu við framfarir og stærð fiskiskipa sem og ofurveiðarfærum stórútgerðarinnar.
Kannski er tímabært að loka á dregin veiðarfæri innan 12 mílna allt í kringum landið? Og gera tilraun með kyrrstæð veiðarfæri á þeirri veiðislóð næstu 40 árin.
Umræða
Share2Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    Bandaríski sjóherinn sveimar yfir Selfossi, Hveragerði og Ölfusi

    70 deilingar
    Share 28 Tweet 18
  • Reyna að sverta Flokk fólksins

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Gekk um nakinn í íbúðarhverfi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Niðurfelling olíugjalds ekki skilað sér að fullu til neytenda

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Íslenska vatnið líka með bókun 35 – vatn á að verða „alþjóðleg eign“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?