Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út síðdegis í dag til að aðstoða við lögregluaðgerð á Selfossi
Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi segir að hún hafi verið kölluð út vegna slagsmála, þar sem mögulegt var að vopn væru notuð.
Vegna þess var sérsveitin einnig kölluð til.
Einn var handtekinn í aðgerðinni og er málið í rannsókn.
Umræða

